Go to content

Main menu:


Skólastefna

Um skólann

Skólastefna
Grunnskólinn


Þekking og færni – virðing og vellíðan


Starf grunnskólans grundvallast á jafnrétti allra nemenda og því lífsviðhorfi að hverjum einstaklingi skulu sköpuð námsskilyrði svo hann megi á eigin forsendum þroskast og dafna og útskrifast úr grunnskóla sem sjálfstæður, hugrakkur og ekki síst lífsglaður einstaklingur; jákvæður, fær og fróður.

Grunnskólinn er undirbúningur fyrir ófyrirsjáanlega framtíð. Áhersla er lögð á að efla og styrkja sjálfsþekkingu nemenda svo að þeir þroski með sér frumkvæði, áræðni og sköpunarkraft til að takast á við síbreytilegar aðstæður í veruleika framtíðarinnar.

Nemendur, starfsfólk og foreldrar eru ein liðsheild. Daglegur rekstur og samskipti þeirra einkennast af lausnamiðaðri nálgun, virðingu fyrir hverjum einstaklingi, jákvæðni og metnaði til árangurs.

Grunnskóli Dalvíkurbyggðar sýnir í skólanámskrá sinni leiðir að markmiðum skólastefnunnar þar sem fram kemur í starfsáætlun hans hvaða skref skólinn hefur stigið og hver eru þau næstu.

Skólastarf í Grunnskóla Dalvíkurbyggðar


Skólastefnan í heild sinni



Back to content | Back to main menu