Go to content

Main menu:


Fréttir

Skólahald í dag (07.01.2011)
Kennt verður í Dalvíkurskóla í dag en sökum veðurs og ófærðar biðjum við foreldra að meta það hvort þeir senda börn sín í skólann.

Ný heimasíða Grunnskóla Dalvíkurbyggðar
(04.01.2011)
Ný heimasíða Grunnskóla Dalvíkurbyggðar hefur nú verið tekin í notkun. Síðan er á slóðinni
http://www.dalvik.is/grunnskoli og mun hún leysa af hólmi gömlu heimasíður bæði Dalvíkurskóla og Árskógarskóla. Gömlu síðurnar verða þó aðgengilegar áfram á sömu slóðum og verið hefur en þær verða ekki uppfærðar frekar.

Gleðilegt nýtt ár
(02.01.2011)
Um leið og við óskum nemendum og foreldrum gleðilegs nýs árs og þökkum það liðna, minnum við á að kennsla hefst aftur þriðjudaginn 4. janúar kl. 8:00 skv. stundatöflu.

Góðverkadagurinn (16.12.2010)
Í dag var góðverkadagur í Dalvíkurskóla. Kennarar og nemendur fóru út um alla Dalvíkina og unnu góðverk við góðan orðstír. Krakkarnir heimsóttu fyrirtæki og stofnanir, gáfu vegfarendum kerti og smákökur, sungu jólalög, lásu upp úr bókum, aðstoðuðu á leikskólum og svo mætti lengi telja en myndirnar tala sínu máli. Hér eru myndir sem teknar voru á góðverkadaginn.

Litlu jólin
(15.12.2010)
Liltu jólin hjá nemendum eldra stigs verða fimmtudaginn 16. des. og hefjast kl. 20. Nemendur mæta hjá umsjónarkennara sem merkir við og síðan verðum við með hátíðarstund á sal, að henni lokinni fara nemendur í heimastofur með kennurum sínum og bragða á smákökum og gosi. Kl. 21:30 hefst jólaball í Pleizinu sem stendur til ca. 23:30.
Rútur í sveit og strönd kl. 19:30 (Steindyr kl. 19:40) og aftur heim að loknu balli.

Litlu jólin hjá 1.-6. bekk verða föstudaginn 17. des. kl. 9-11. Nemendur hitta umsjónarkennara í heimastofu, fara á sal og horfa á helgileik, dansa í kringum jólatréð, hitta jólasveinana og borða jólanestið sitt, smákökur og gos.
Rútur leggja af stað klukkutíma seinna en venjulega og heim rétt um 11.


Góðverkadagur í Dalvíkurskóla
(15.12.2010)
Ágætu foreldrar og forráðamenn nemenda í Dalvíkurskóla !
Þann 16. desember næstkomandi er svokallaður „Góðverkadagur“ í Dalvíkurskóla. Þennan fimmtudag verður sérstaklega unnið með hugtökin
hjálpsemi og góðvild og nemendur vinna verkefni tengd þessum hugtökum, undir handleiðslu kennara síns.
Þá fara nemendahópar víða um bæjarfélagið, fyrir hádegi þennan dag, að láta gott af sér leiða m.a. með því að gefa íbúum kerti og kökur, aðstoða við þrif og innkaup, moka og sópa – og svo verður sungið og trallað á opinberum vettvangi s.s. eins og í Úrval-Samkaup, N1 og Olís. Hópar nemenda munu starfa m.a. á Krílakoti, Kátakoti, Dalbæ, í sundlauginni og í skólanum.
Við hvetjum því fólk að vera á ferðinni um bæinn þennan morgun og verða vitni að einstaklega skemmtilegri uppákomu hjá unga fólkinu okkar. Viðburður þessi er skipulagður með það í huga að veita gleði og ánægju - og dreifa „hinum sanna jólaanda“ inn í hug og hjörtu fólks á förnum vegi.
Hafi fólk hug á að koma jólapökkum áleiðis undir jólatréið í Samkaup-Úrval, er tilvalið að nýta þennan dag til þeirra góðu verka.

Kveðja
Nemendur og starfsfólk Dalvíkurskóla

Helgileikur 6. bekkjar
(14.12.2010)
Eins og undanfarin ár sér 6. bekkur um að flytja hinn árlega helgileik fyrir bæjarbúa. Mikið mæðir á nemendum því um fimm sýningar er að ræða. Sýnt er í Dalvíkurskóla, Dalbæ og í Dalvíkurkirkju. Nemendur 6. bekkjar hafa sýnt mikinn metnað við undirbúninginn og hér má sjá myndir af sýningu þeirra á Dalbæ.

Skólahreysti
(13.12.2010)
Miðvikudaginn 8. desember fór innanskólakeppni í skólahreysti fram í Dalvíkurskóla. Mikið var um dýrðir í nýju íþóttamiðstöðinni þegar keppnin fór fram og var þátttaka mjög góð. Keppt var í upphífingum og dýfum hjá strákum og hangi og armbeygjum hjá stelpum auk þess sem bæði kyn tóku þátt í hraðabraut. Úr varð hin skemmtilegast morgunstund og myndaðist skemmtileg stemning, bæði á meðan keppenda og á áhorfendapöllunum. Hér eru úrslitin.


Skólahreysti
(03.12.2010)
Innanskólaeppni í skólahreysti verður haldin í íþróttamiðstöðinni næsta miðvikudagsmorgun. Nemendur í 6. – 10. bekk eiga kost á því að keppa. Við vonumst til að þetta verði skemmtilegt uppbrot á skólastarfinu og nemendur hafi gaman af.


Skólavistun Dalvíkurskóla - Frístund (03.12.2010)
Frá því haustið 2009 hefur Dalvíkurskóli boðið upp á skólavistun til 16 á daginn. Í vetur eru yfir 20 börn sem njóta þessarar þjónustu. Meirihluti þessara barna vinnur allt sitt heimanám þar og er því oft mikill erill hjá Hafdísi og Friðjóni sem starfa við skólavistunina. Vistunin er staðsett í vestur hluta skólans með aðgengi að tveimur stofum og bókasafni sem börnin kunna vel að meta. Kíkið á myndirnar.




Jólasöngur
(29.11.2010)

Skólavikan hófst með því að nemendur hittust í andyri skólans og sungu saman nokkur jólalög. Hjöri spilaði undir sönginn. Hér eru myndir.


Jólaföndur
(29.11.2010)
Jólaföndur Dalvíkurskóla var föstudaginn 26. nóvember. Eins og sjá má á myndunum sem hér fylgja áttu ömmur og afar, mömmur og pabbar, frændur og frænkur, börn og kennarar notalega stund.

Spuringakeppni eldra stigs (26.10.2010)
Spurningakeppni eldra stigs var haldin í dag. Í undanúrslitum kepptu lið 9. og 8. bekkjar annars vegar og lið 7. og 10. bekkjar hins vegar. Lið 9. og 7. bekkjar unnu sínar viðureignir og kepptu því til úrslita. Það var rafmagnað andrúmsloft í salnum á meðan úrslitaviðureignin var háð. Jafnræði var með liðunum allan tímann en svo fór að lokum að 7. bekkur seig fram úr á lokasprettinum og sigraði sigurvegara síðustu tveggja ára með 44 stigum geng 41. Lið 7. bekkjar var skipað þeim Unnari Birni, Ólöfu og Álfgrími. Lið 9. bekkjar var skipað þeim Úlfari, Jóhanni og Anítu. Lið 10. bekkjar var skipað þeim Súsönnu, Arinbirni og Gylfa Má og lið 8. bekkjar var skipað Degi, Valdimar og Viktor. Hér eru myndir frá spurningakeppninni.


Skólavinir
(22.11.2010)

Nemendur í 7. bekk eru skólavinir í vetur. Þau aðstoða yngri nemendur í forstofunni og fylgjast með þeim í frímínútum.
Skólavinir eru sýnilegir, klæðast vestum þannig að auðveldara er fyrir nemendur að leita til þeirra.
Skólavinir starfa 3- 4 saman. Nánar.


Olweusáætlunin gegn einelti
(18.11.2010)

Grunnskóli Dalvíkurbyggðar vinnur eftir Olweusáætlunni gegn einelti. Á heimasíðu okkar má finna upplýsingar um áætluna og hvernig tekið er á málum þegar einelti kemur upp í skólanum, sjá hér. Öll mál sem koma upp eru unnin í eineltisteyminu okkar. Hér má sjá mynd af eineltishringnum sem sýnir stöðu þolanda og gerenda í einelti.
Einnig má finna upplýsingar um einelti á heimasíðu Olweusaráætlunarinnar á Íslandi olweus.is. Bæklingur um einelti á olweus.is.
Á heimasíðu Heimilis og skóla er mjög góður bæklingur fyrir foreldra.

Dagur íslenskrar tungu (17.11.2010)
Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur víða um land á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar 16. nóvember ár hvert.Þann dag beitir menntamálaráðuneytið sér fyrir sérstöku átaki í þágu íslensks máls og helgar þennan dag rækt við það.Einnig eru veitt svokölluð Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar en þau eru veitt einstaklingum sem hafa með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti, með skáldskap, fræðistörfum eða kennslu og stuðlað að eflingu hennar, framgangi eða miðlun til nýrrar kynslóðar.Í ár hlaut frú Vigdís Finnbogadóttir þessi verðlaun en nánar um þau verðlaun má sjá hér
http://www.menntamalaraduneyti.is/menningarmal/dit/nr/658
Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk hefst einnig formlega ár hvert á degi íslenskrar tungu og er sú keppni nú haldin í fimmtánda sinn líkt og dagur íslenskrar tungu.
Grunnskólar landsins fagna gjarnan þessum degi með að draga fána að hún enda er dagurinn orðinn einn af fánadögum lýðveldisins.Einnig er ýmislegt gert til hátíðarbrigða og íslenskan í hávegum höfð þennan dag.

Í Dalvíkurskóla safnaðist eldra stigið saman á sal í morgunsárið og horfði saman á myndina Land og synir.Sú mynd er gerð eftir samnefndri sögu Indriða G. Þorsteinssonar og er tekin upp hér í byggðarlaginu árið 1979.Þar er að finna marga merka íbúa sem og skemmtileg myndskot af húsum og náttúru byggðarlagsins.Á meðan á sýningunni stóð punktuðu nemendur hjá sér atriði sem þeim þóttu fyrir einhverjar sakir merkileg, skrýtin eða áhugaverð.Þetta voru atriði eins og orð eða orðfæri, hlutir og atburðir.Að lokinni sýningu fór hver bekkur í sína heimastofu þar sem viðkomandi kennari ræddi við nemendur um þau atriði sem skráð höfðu verið niður.Orðin voru t.d. skrifuð upp á töflu, flett upp í orðabókum til að finna útskýringar, rætt um merkingu þeirra og notkun.Þá voru útskýrðir þeir hlutir sem notaðir voru í myndinni, rætt um áhugaverða atburði og hvernig samfélagið hefur breyst síðan þessi mynd var tekin upp.Spunnust margar góðar umræður í bekkjunum og ljóst að nemendur höfðu töluverða skemmtun af því að sjá fólk úr byggðarlaginu sem það þekkti vel – föður, afa, frænda, frænku ... og ekki síður af því að sjá hús og staði sem það hefur margoft séð í daglegu lífi.

Stóra upplestrarkeppnin
(17.11.2010)
Stóra upplestrarkeppnin var sett formlega í dag. Keppnin er fyrir 7. bekkinga og hefst á Degi íslenskrar tungu og lýkur í mars. Myndir


Breytingar á rútuplani í Svarfaðardal
(17.11.2010)
Næstkomandi mánudag verða breytingar á rútuplani í Svarfaðardal. Þeir sem málið varðar eru vinsamlega beðnir að skoða nýtt skipulag hér.


Stærðfræðispil
(16.11.2010)
Að spila við börn er skemmtileg leið til að þjálfa rökhugsun. Flest spil fela einnig í sér tölur og reikning. Nú hafa verið settar inn á Töfraheim stærðfræðinnar spilaleiðbeiningar fyrir nokkur einföld spil og kapla sem og teningaspil sem þjálfa talnaleikni og rökhugsun. Góða skemmtun!

Opið hús
(12.11.2010)
Í gær fimmtudaginn 11. nóvember var opið hús í Dalvíkurskóla. Þar gátu foreldrar og börn litið við og gripið í spil, skoðað bækur á bókasafni og/eða náð tali af skólatjórnendum. Hér eru myndir frá opnu húsi.

3. og 4. bekkur buðu í heimsókn
(10.11.2010)
Krakkarnir í 3. og 4. bekk buðu krökkunum á Kátakoti, 1. og 2. bekk á sal nú nýlega.
Þar kynntu þau sýnihorn af verkefnum sem þau hafa verið að vinna í byrjendalæsi.
Þau hafa verið að vinna með bókina um Blómin á þakinu og kynnt sér eitt og annað um líf í borg og sveit Þau unnu líka verkefni um dýrin í sveitinni, persónur í sögunni og matjurtargarðinn hennar Gunnjónu. Hér eru myndir.

Opið hús
(10.11.2010)
Fimmtudaginn 11. nóv. verður opið hús í Dalvíkurskóla frá kl. 16:30- 18:30 fyrir foreldra og nemendur.
Þessi stund er hugsuð sem notarleg samverustund þar sem foreldrar og börn geta spilað saman eða teflt. Einnig verður bókasafnið opið. Þar er hægt að kíkja í bækur eða fletta blöðum.
Nemendur verða að vera í fylgd foreldra eða forráðamanna.

Örfrétt frá 6. bekk
(10.11.2010)
6.bekkur að störfum í heimastofu sinni á hefðbundnum vinnudegi. Sjá myndir hér.

Breyting á skóladagatali
(09.11.2010)
Breyting hefur verið gerð á skóladagatali Grunnskóla Dalvíkurbyggðar. Starfsdagur sem átti að vera hálfur 15. nóvember verður heill dagur vegna náms - og kynnisferðar starfsfólks til Reykjavíkur. Í staðinn fellur niður hálfur starfsdagur sem átti að vera 22. febrúar 2011.

Námsmatsvika í Dalvíkurskóla
(08.11.2010)
Þessa vikuna 8.-12. nóvember er námsmatsvika í Dalvíkurskóla. Í 7.-10. bekk eru nemendur í prófum frá 8-9 alla morgna vikunnar. Nemendur fá prófamöppu á mánudegi með fjórum prófum og hafa því 5 klst. til að leysa prófin. Gert er ráð fyrir því að vitnisburður verði sendur heim rafrænt mánudaginn 29. nóvember.

Norræn bókasafnsvika
(08.11.2010)
8. -14. nóvember er Norræn bókasafnsvika. Bókasafn Dalvíkur verður með dagskrá frá mánudegi til föstudags. Þema vikunnar er
Töfraheimar Norðursins með áherslu á galdra og dularfulla atburði. Nemendur 4.-8. bekkjar að 7. bekk undanskildum koma í heimsókn sem tekur eina klst. Þeir mæta kl. 9:10 í bókasafnið, þar verður tekið á móti þeim og lesið upp úr bókum eftir norræna höfunda.

Byrjendalæsi í 1.-4. bekk
(08.11.2010)
Byrjendalæsi er kennsluaðferð sem lögð er til grundvallar í lestrakennslu í Grunnskóla Dalvíkurbyggðar.
Lestur, ritun, tal og hlustun eru samofnir þættir og unnið er með þá á heildstæðan hátt.
Góðar barnabækur er sá efniviður sem unnið er með og hann nýttur í vinnu með stafi og hljóð, orðaforða, skilning og ritun af ýmsu tagi.
Á myndunum má sjá nokkur verkefni frá nemendum í Byrjendalæsi.

Fræðslu- og umræðufundur um stærðfræði
(04.11.2010)
Þriðjudaginn 9. nóvember klukkan 20:30-22:00 verður fræðslu- og umræðufundur um stærðfræðinám og stærðfræðikennslu í hátíðarsal Dalvíkurskóla. Þar mun Dóróþea Reimarsdóttir fjalla um breyttar áherslur í stærðfræðikennslu á síðustu árum. Hún mun einnig kynna þróunarverkefnið okkar,
Töfraheim stærðfræðinnar. Foreldrar, einkum yngri barna, eru hvattir til að mæta en fundurinn er opinn öllum sem áhuga hafa á efninu.

Leiklistarhópurinn frumsýnir nýtt leikrit
(02.11.2010)
Leiklistarhópur unglingadeildar Dalvíkurskóla frumsýnir nýtt leikverk föstudaginn 5. nóvember næstkomandi í Ungó. Nefnist það verk „
Saga hússins...“ eftir Arnar Símonarson og leikhópinn. Dalvíkurskóli og Leikfélag Dalvíkur eru nú enn og aftur í samstarfi í tengslum við leiklistarvinnu með unglingum í Dalvíkurbyggð. Er þetta í sjötta sinn sem samstarf af þessu tagi er tekið upp. LD leggur fram æfingarhúsnæði til afnota í 6 vikur fyrir þessa vinnu, endurgjaldslaust og félagsmenn, auk foreldra nemenda aðstoða auk þess varðandi búninga, leikmuni og fleira.Leiklist er kennd sem valgrein í 8.,9. og 10. bekk í Dalvíkurskóla og hvorki fleiri né færri 28 nemendur sækja þessa faggrein í vetur ! Leiðbeinandi leikhópsins og leikstjóri uppfærslunnar er Arnar Símonarson, kennari og samfélagsþjálfi.Æft er síðdegis og á kvöldin alla virka daga.
Arnar segir að verkið sem slíkt sé fjörugt með fullt af skemmtilegum augnablikum, en það er unnið út frá skapandi hugmyndavinnu. „Í miklu rigningarveðri koma ung hjón að skoða hús. Þau hitta fyrir gamlan mann sem segir þeim sögu þess. Og margt skrýtið og skondið gerist.“Kristján Guðmundsson og Hans Friðrik Hilarius og Dagur Halldórsson sjá um ljósavinnu, Aron Óskarsson sér um hljóð og Guðný Ólafsdóttir hannar leikskrá. Umsjón með miðasölu er í höndum Lovísu Maríu Sigurgeirsdóttir. Áætlaðar eru 8 sýningar á verkinu.
Miðapantanir í síma 865 3158 (Lovísa María)
Sýningar !!
Föstudagur 5. nóv. Kl. 18.00 Frumsýning.
Laugardagur 6. nóv. Kl. 16.00 2. sýning.
Laugardagur 6. nóv. Kl. 18.00 3. sýning.
Sunnudagur 7. nóv. Kl. 16.00 4. sýning.
Sunnudagur 7. nóv. Kl. 18.00 5. sýning.
Mánudagur 8. nóv. Kl. 20.30 6. sýning
Þriðjudagur 9. nóv. Kl. 20.30 7. sýning.
Föstudagur 12. nóv. Kl. 18.00 8. sýning.
Ath! Aðeins þessar sýningar í boði!
Verð : Börn yngri en 6 ára : 400.-Börn á grunnskólaaldri 700.-Fullorðnir 1.000.-


Stjörnufræðivefurinn færir Dalvíkurskóla stjörnusjónauka
(01.11.2010)
Fulltrúar frá Stjörnufræðivefnum komu færandi hendi í heimsókn til okkar um daginn. Meðferðis höfðu þau Galileó stjörnusjónauka sem þau færðu skólanum að gjöf. Auk sjónaukans
gáfu þau skólanum heimldarmyndina Horft til himins og tímarit Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. Stjörnufræðivefurinn er nú að færa öllum grunnskólum landsins stjörnusjónauka og vona að með því aukist áhugi grunnskólanema á vísindum. Við þökkum Stjörnufræðivefnum fyrir höfðinglega gjöf og erum þess fullviss að stjörnusjónaukinn eigi eftir að nýtast vel við náttúrufræðikennslu hér við skólann.





Eldri fréttir.......


You did not upload swfobject.js or you do not have flash installed
Heimsóknir frá 18.janúar 2008

Þróunarverkefni



Byrjendalæsi
_____________


Fjölbreytt námsmat
_____________


______________________


Olweusáætlun
_____________


Grænfánaverkefni



Töfraheimur stærðfræðinnar


Skólavinir
______________


Comeniusarverkefni
____________


Vefpóstur kennara

Skipulag og viðburðir í desember

Skóladagatal 2010-2011

Frístund - Skólavistun (upplýsingar)

Frístund - Skólavistun (eyðublað)


Þeir sem eiga í erfiðleikum með að opna Office 2007 geta hlaðið niður forritinu hér að neðan til að skoða þau.
Word viewer

Ef erfiðleikar koma upp við lestur skjala með pdf sniði þá er hér hægt að nálgast
Adobe Reader
______________


Back to content | Back to main menu