Main menu:
Um skólann
Skólar á grænni grein - Grænfáninn
Skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Þeir skólar sem vilja komast á græna grein í umhverfismálum leitast við að stíga skrefin sjö. Þegar því marki er náð fá skólarnir leyfi til að flagga Grænfánanum næstu tvö ár en sú viðurkenning fæst endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Skrefin sjö eru ákveðin verkefni sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Verkefnin eru bæði til kennslu í bekk og til að bæta daglegan rekstur skóla. Þau auka þekkingu nemenda og skólafólks og styrkja grunn að því að tekin sé ábyrg afstaða og innleiddar raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum skóla. Jafnframt sýnir reynslan í Evrópu að skólar sem taka þátt í verkefninu geta sparað talsvert í rekstri.
Umhverfisvæn ráð
Ekki fleygja rusli á almannafæri.Gættu þess að skilja aldrei eftir sorp á götunni, í náttúrunni og sérstaklega ekki nærri niðurföllum. Það getur stíflað og valdið tjóni. Hagnýttu þér sorpílát á almannafæri. Þau eru allsstaðar og eru ætluð til einmitt þessara nota.
Gættu þess að fá næga hreyfingu.Í stað þess að aka er ráðlegt að ganga, hjóla eða fara með strætisvagni. Með því móti bætir þú heilsuna en, að auki dregur þú úr umferð, loftmengun, hávaða og dregur úr slysahættu.
Skrúfaðu fyrir vatnið. Gættu þess að sóa ekki vatninu t.d. þegar þú burstar tennurnar. Með því móti sparast 10 L. vatns í hvert skipti.
Drögum úr mengun með því að endurnýta sorp
Með því að senda gler, pappír, rafhlöður, vélarolíu og áldósir í endurnýtingu er hægt að minnka magn sorps sem fer í brennslu um allt að 70 %
Notum eins lítið og hægt er af pappírshandþurrkum.
Með því að draga úr sóun, hjálpum við trjánum og lengjum líftíma skóganna.
Gleymdu ekki að slökkva ljósin.
Með því að slökkva 5 ljós í forstofu og herbergjum húss-þegar þeirra er ekki þörf-er hægt að spara góðan pening.
Endurvinnsla.
Það sem áður var skilgreint sem úrgangur eða rusl er í dag hráefni eða auðlind fyrir aðra framleiðslu. Úrgangur og rusl er ekkert annað en auðlind á villigötum. Næstum allt er hægt að endurnota eða endurvinna en best er að forðast að kaupa „rusl . Flest sveitarfélög taka á móti helstu endurvinnsluflokkum og er þar stuðst við Fenúrflokkana. Með skipulagi heimafyrir og í skólanum getur flokkunin verið skemmtileg fyrir alla fjölskyldumeðlimi og skilagjald á áldósum og gosflöskum getur verið góð tekjulind fyrir fjölskyldur.