Go to content

Main menu:


Fjölskylduvefur Mentors

Gagnlegir tenglar



Tekið af vef Mentors


Um Mentor.is
Mentor.is er heildstætt upplýsingakerfi með vefviðmóti sem eykur upplýsingaflæði innan skólans, til foreldra og sveitarfélaga. Megintilgangur kerfisins er að auðvelda vinnu kennara og skólastjórnenda með því að bjóða skólum verkfæri sem auðveldar þeim dagleg störf, s.s. við skráningu í hópa og stundatöflur, skráningu á ástundun, einkunnavinnslu og skipulagningu á einstaklingsmiðuðu námi. Ekki er síður mikilvægt að auka möguleika foreldra á að fylgjast með skólagöngu barna sinna og þátttöku þeirra í skólastarfinu.Skólar standa í dag frammi fyrir auknum kröfum er varða upplýsingaflæði til foreldra og áherslu á einstaklingsmiðað nám og námsmat. Foreldrar eru sífellt að verða virkari þátttakendur í skólastarfinu og þeir kalla á stöðugar upplýsingar frá skólunum. Þessar auknu kröfur kalla á breytingar í starfi og vinnuumhverfi kennarans. Mentor á sér útgangspunkt í þessu breytta umhverfi. Til þess að búa til kerfi sem virkilega auðveldar vinnu kennara þarf að hafa góðan skilning á skólastarfi. Því er Mentor.is þróað í nánu samstarfi við kennara og aðra sérfræðinga í skólastarfi. Í Mentor starfa kennaramenntaðir ráðgjafar sem einnig koma að hönnun kerfisins.

Notkun kerfisins
Kerfið er í mjög víðtækri notkun og eru einstaka notendur á degi hverjum virkum degi að meðaltali um 5000 talsins.Mikil aukning er á innskráningum foreldra í kerfið þar sem að þeir hafa meðal annars aðgang að heimavinnuáætlunum nemenda og geta fylgst með ástundun frá degi til dags. Mentor.is er notað í 97% grunnskóla landsins (sem hafa fleiri en 35 nemendur) en það er misjafnt eftir skólum hversu mikið kerfið er notað og þá til dæmis hvort foreldraviðmót sé nýtt. Á degi hverjum skrá 54% allra grunnskólakennara landsins sig inn í kerfið.

Mentorvefurinn


Sub-Menu:

  • Fjölskylduvefur Mentors
  • Tenglar

Back to content | Back to main menu