Main menu:
Fréttir
Frétt frá 9. bekk (4.júní 2010)
9. bekkur fór í tvær ferðir á lokadögum skólans sem tengjast þemum sem unnið var með í vetur. Krakkarnir skemmtu sér vel og myndirnar segja meira en mörg orð.
Þemadagar í 1.-3. bekk (3. júní 2010)
Í yngstu bekkjardeildunum voru þemadagar 31. maí og 1. júní og var þemað „hreyfing og hreysti“, eins og í eldri bekkjardeildum.Mánudagurinn byrjaði með hópefli í formi leikja undir stjórn Þóru Ólafs, síðan var skipt í þrjá hópa.Í einum hópnum fengu krakkarnir að kynnast skátastarfi, en hún Margrét Th. Aðalgeirsdóttir, félagsforingi hjá Skátafélaginu Klakki á Akureyri kom og stjórnaði krökkunum í skemmtilegum skátaleikjum. Sandra Dögg Guðmundsdóttir ræddi við krakkana um skyndihjálp og það sem máli skiptirþegar slys ber að höndum. Ingunn Margrét Hallgrímsdóttir danskennari kenndi öllum partýpolka eftir skemmtilega upphitun með hókí-pókí, síðan marseruðu þau í lok tímans.
Á þriðjudaginn skiptum við krökkunum í tvo hópa. Annar hópurinn hjólaði í Árgerði, þar sem þau steiktu pylsur yfir opnum eldi, klifruðu í trjám, hoppuðu á trampólíni, rannsökuðu lækinn og léku sér. Á meðan fór hinn hópurinn í sund og naut sín þar. Seinni part morguns skiptum við um hlutverk. Þessir dagar voru ákaflega vel heppnaðir þrátt fyrir leiðinda norðanátt og kulda. Viljum við þakka húsfreyjunni í Árgerði kærlega fyrir aðstoð og almennilegheit!
Hér sjáið þið nokkrar myndir frá fyrri þemadeginum.
Rútuplan v/skólaslita
Skólaslit 1.-4. bekkjar kl. 11:00. Rútur leggja af stað frá Melum kl. 10:40 og frá Bakka kl. 10:45
Skólaslit 5.-8. bekkjar kl. 13:00. Rútur leggja af stað frá Melum kl. 12:40 og frá Hæringsstöðum 12:35
Kæru foreldrar/forráðamenn !
Nú er komið að skólalokum og er síðasti nemendadagur 2. júní.
Nemendur mæta á skólaslit sem hér segir:
Árskógarskóli:
Fimmtudaginn 3. júní kl: 18.00 1. – 8. bekkur
Dalvíkurskóli:
Föstudaginn 4. júní kl. 11.00 1. – 4. bekkur
kl. 13.00 5. – 8. bekkur
kl. 20.30 9. – 10. bekkur
Skólaslit Dalvíkurskóla fara fram í hátíðarsal skólans og er gengið
inn um aðalinngang.
Ef foreldrar hafa einhverjar spurningar á þessum tímamótum
varðandi sitt barn geta þeir haft samband við umsjónarkennara.
Að lokum viljum við starfsfólk Grunnskóla Dalvíkurbyggðar þakka
foreldrum gott samstarf á skólaárinu og óskum foreldrum og nemendum gleðilegs sumars.
Skóladagatal næsta skólaárs verður sett á heimasíðu skólanna.
Starfsfólk Grunnskóla Dalvíkurbyggðar
Þemadagar eldra stig (31.maí 2010)
Þemadagar á eldra stigi gengu frábærlega. Síðustu 3 daga hafa nemendur smíðað fuglaskoðunarhús, aðstoðað á leikskólum, í skólanum, í vinnuskólanum, á Dalbæ, farið í starfskynningar, kynnt sér tómstundastarf og starfsemi stjórnmálaflokkanna í Dalvíkurbyggð. Krakkarnir hafa staðið sig mjög vel á öllum þessum stöðum og verið sjálfum sér og skólanum til sóma. Sjá myndir.
Morgunleikfimi (27.maí 2010)
Síðastliðinn föstudagsmorgun fór skólastjórinn út á lóð með allt sitt fólk og nemendur út í morgunleikifimi kl. 8:00. Þetta var óvenjuleg en mjög góð pg ánægjuleg byrjun á skóladegi. Öll hreyfing hefur jákvæð áhrif og á má sjá að það var vel lagt í æfingarnar undir dyggri stjórn Gísla skólastjóra
3. bekkur í leik og starfi (27. maí 2010)
Við í 3. MA höfum brallað heilmikið að undanförnu. Hér má sjá myndir frá hinum og þessum stöðum þar sem við höfum verið að skemmta okkur við leik og störf. Sjá má myndir af undirbúningi fyrir árshátíðina, sjá krakkana breytast í fallegu dýrin í Hálsaskógi. Einnig má sjá myndir af því þegar við fórum í útungunarstöðina og skoðuðum hátt í 7000 unga...jæja kannski ekki alveg alla. Við erum búin að fara í fjöruferð sem var mjög skemmtileg. Þar sáu krakkarnir fugl sem lá á eggjum sínum í hreiðrinu og gátu meira að segja klappað honum. Að lokum má sjá myndir af sveitaferðinni okkar sem var líka vel heppnuð.
Njótið vel! Bestu kveðjur frá okkur í 3. MA
Góðar gjafir (27. maí 2010)
Enn og aftur kemur foreldrafélagið færandi hendi. Nú færðu þau skólanum að gjöf 2 Sony digital myndavélar. Við þökkum innilega fyrir þessa góðu gjöf sem sannarlega kemur að góðum notum. Sjá mynd hér til hliðar.
Stærðfræði undir berum himni. (20.maí 2010)
Dalvíkurskóli eignaðist nú fyrir stuttu nýtt kennsluefni í stærðfræði fyrir nemendur í 1.-4. bekk „Stærðfræði undir berum himni“. Þetta er norskt efni, en þær Þóra Rósa Geirsdóttir og Ingileif Ástvaldsdóttir þýddu efnið og staðfærðu.
Efnið miðast allt við það að leysa ýmis verkefni hlutbundið úti. Kennsluaðferðir eru fjölbreyttar og gefandi. Námið er fléttað í leik og nemendur þurfa að beita rökhugsun og vinna saman að lausn verkefna og þrauta.
Á myndunum má sjá nemendur í 2. bekk vinna að því að leysa eitt verkefni úr efninu.
Í maí er Hreysti lífsleikniþema hjá okkur er þetta því kærkomið efni.
Myndir frá vorhátíð.
Lífsleikniþema í maí er HREYSTI
Skipulag vordaga.
Vordagar á eldra stigi
Vordagar á yngra stigi
Hreystibækur (17.maí 2010)
Síðastliðinn mánudag fengum við góða heimsókn í 1. -6. bekk. Björgvin Björgvinsson og Harpa Rut Heimisdóttir ræddu við nemendur um gildi þess að borða hollan og góðan morgnmat, fjölbreytt fæði og hugsa vel um hreyfingu. Þau útskýrðu vel fyrir nemendum að líkaminn þarf orku til að ganga, en það væri ekki sælgæti eða gos sem væri besta orkan heldur hollt fæði t.d. ávextir, grænmeti, fiskur og kjöt. Einnig nefndu þau að hreyfing þarf ekki að fara eingöngu fram á íþróttaæfingu heldur væri almenn hreyfing líka góð, góðir göngutúrar, hjóla eða sundferðir góður kostur. Nemendur höfðu áður undirbúið spurningar til þeirra.
Eftir þessa góðu heimsókn fengu nemendur afhenda hreystibók sem þau hafa heima í tvær vikur. Þar merkja þau við daglega hreyfingu og hversu mikið þau borða af ávöxtum og grænmeti. Við hvetjum foreldra til að taka þátt í þessu, styðja við nemendur og taka einn og einn hjólreiða eða göngutúr með þeim. Sjá myndir hér.
Skólahreysti myndir (11.05.2010)
eru nokkrar myndir frá Skólahreysti í Reykjavík. Einnig er hér tengill á flickersíðu Kristins Þórs.
Góða gjafir (11.05.2010)
Stjórn foreldrafélags skólans afhenti skólanum þrjú DVD- og myndbandstæki nú á dögunum. Tækin eru kærkomin enda voru gömlu tækin orðin lúin. Á næstunni mun foreldrafélagin kaupa stafrænar myndavélar og gefa skólanum. Við þökkum kærlega fyrir.
Vorhátíð (11.maí 2010)
Vorhátíð Dalvíkurskóla verður fimmtudaginn 13. maí frá klukkan 11:00 til 14:00. Þennan dag verður skólinn opinn öllum sem vilja skemmta sér saman og skoða afrakstur af vinnu nemenda. Sjá nánar hér.
UNICEF
Dalvíkurskóli tekur þátt í söfnunarátaki til styrktar Unicef, barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Í ár ætla nemendur í 1.-8. bekk að taka þátt í áheitasöfnuninni og koma því heim með umslög sem foreldrar eða aðrir fjölskyldumeðlimir skrifa áheit sín á. Áheitin snúast um að borga smá upphæð fyrir hvern hlaupinn/genginn hring á íþrótttavellinum, í einn klukkutíma. Algengt er að krakkarnir hlaupi 8-10 hringi, sumir minna aðrir meira. Nemendur þurfa síðan að innheimta áheitin eftir hlaupið sem fer fram föstudaginn 14.maí. Peningaumslögunum þarf að skila til skólans fyrir 20. maí. Foreldrum er einnig velkomið að taka þátt í söfnuninni, ganga t.d einn hring með okkur og styrkja gott málefni með smá peningaupphæð. Verkefnastjóri er Guðný Ólafdóttir, sem gefur nánari upplýsingar ef þörf er. Nánari upplýsingar er hægt að skoða á www.unicef.is.
Árskógarskóli í heimsókn (4.maí 2010)
Verðandi 9. bekkingar frá Árskógsströnd áttu góðan dag með verðandi skólasystkinum sínum í Dalvíkurskóla mánudaginn 3. maí. Var aðeins farið út fyrir rammann af þessu tilefni. Hópurinn t.d. hristur saman með hópefli og sameiginlegum íþróttatíma og spilastund. Vinalegt andrúmsloft myndaðist meðal krakkana. Góður dagur að baki. Sjá myndir
Auglýsing um störf í Dalvíkurbyggð. Smellið á tengilinn hér fyrir ofan til að fá nánari upplýsingar.
Veisla í 7. EA (29.04.2010)
Þriðjudaginn 27. apríl varð Ásta okkar sjötug. Þennan dag bauð hún bekknum upp á köku í tilefni dagsins. Óskum við henni innilega til hamingju með daginn og þökkum fyrir að fá að hafa hana hjá okkur í vetur. Hérna sjáið þið myndir frá veislunni.
Kveðja 7. EA
Spurningakeppni (27.04.2010)
Úrslit spurningakeppni grunnskólanna var haldin þriðjudaginn 20. apríl sl. Í undanúrslitum keppti Dalvíkurskóli við lið Glerárskóla 2. Viðureignin var æsispennandi og jafnt á öllum tölum, en í lokinn seig Glerárskóli fram úr og vann með 28 – 24. Þau Stefanía, Björgvin og Jóhann stóðu sig mjög vel, til hamingju með frábæran árangur. .
Hjólum í skólann! (26.04.2010)
Nú þegar sól hækkar á lofti og vorið framundan mega nemendur í 2. -10. bekk koma á hjólum í skólann.
Að sjálfsögðu verða allir að vera með hjálm. Ekki er leyfilegt að leika sér á hjólunum á skólalóðinni eða hreyfa hjólið fyrr en skóladegi lýkur vegna slysahættu. Nauðsynlegt er að foreldrar fari yfir umferðareglurnar með börnum sínum.
1.bekkur hefur undanfarin ár fengið hjálma frá Kiwanishreyfingunni á vordögum og eftir það fengið leyfi til að koma á hjólum.Þetta er í athugun.
Kynning í 7. Bekk (23.apríl 2010)
Krakkarnir í 7. Bekk hafa verið að vinna verkefni um Evrópu frá því fljótlega eftir áramótin. Verkefni þetta var kennt eftir söguaðferðinni og var bekknum skipt upp í 7 hópa. Hver hópur bjó til sína fjölskyldu og valdi sér 3 lönd í Evrópu til að vinna með. Krakkarnir unnu stórt kort af Evrópu í sameiningu og settu inn á það staðsetningu landanna, höfuðborgir og fána. Einnig bjuggu þau til veggspjöld um áhugaverða staði í þessum löndum, gerðu ferðaáætlun, vegabréf og þurftu að takast á við óvænt atvik sem átti sér stað í þessu ferðalagi og fleiri skemmtileg verkefni. Þessari vinnu lauk síðan með kynningu fyrir foreldra og var gaman að sjá hve margir mættu. Eftir að allir hóparnir voru búnir að kynna sín lönd var boðið upp á kaffi og brauð. Hér sjáið þið myndir frá kynningunni.
Valgreinar vegna næsta skólaárs
Hér fyrir neðan eru valgreinahefti vegna skólaársins 2010-2011. Smellið á þann tengil sem á við ykkur og fáið nánari útlistun á því hvað er í boði.
Valgreinahefti fyrir verðandi 8. bekk
Valgreinahefti fyrir verðandi 9.-10. bekk
Spurningakeppni (15.april 2010)
Undanúrslit og úrslit Spurningakeppni grunnskólanna á Norðurlandi verða þriðjudaginn 20. apríl kl. 17 í Rosenborg. Liðið okkar er skipað þeim Jóhanni 8. bekk, Björgvini og Stefaníu í 10. bekk og keppir við lið Glerárskóla(2) í undanúrslitum. Ef við komumst í úrslitin þá keppir liðið aftur kl. 19 við sigurvegara úr viðureign Brekkuskóla og Giljaskóla.
TAPAÐ-FUNDIÐ
Í skólanum er myndavélataska í óskilum, fannst eftir árshátíð skólans. Eigandi getur haft samband við skrifstofu skólans.
Leitin að vorinu – saga úr 1. bekk (12.apríl 2010)
Í dag fóru krakkarnir í fyrsta bekk að leita að vorinu í skógarreitnum. Við löbbuðum upp Mímisveginn og svo áfram upp í reitinn. Þar var mikill snjór, en hlýtt og gott veður. Við sáum gamalt fuglahreiður og lifandi könguló og kanínuspor og fuglaspor í snjónum. Það var brum á sumum trjánum. Við fundum köngla og stungum okkur á furunálum.Sum trén eru sígræn.Á leiðinni sáum við að það var verið að taka snjóinn af götunum og keyra hann í sjóinn. Þetta var skemmtilegur tími, við lærum alltaf eitthvað nýtt í útikennslunni á föstudögum.Það verður gaman að fara aftur í reitinn fljótlega og sjá hvernig náttúran breytist eftir árstíðum.
Þið getið séð myndir úr ferðinni í reitinn hérna.
Fundarboð
Kynningafundur á framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð verður í hátíðasal Dalvíkurskóla 8. apríl kl: 20:30.
Lára Stefánsdóttir nýráðinn skólameistari heldur kynningu.
Foreldrafélag Dalvíkurskóla
Örugg netnotkun
Að gefnu tilefni vilja skólastjórnendur Dalvíkurskóla minna foreldra á upplýsingar um örugga netnotkun barna sem finna má á hér. SAFT samtökin hafa unnið mikið og gott starf í forvörnum og útbúið leiðbeiningar fyrir foreldra og börn um örugga netnotkun og ábyrgð hvers og eins á netinu. Mjög mikilvægt er að foreldrar fylgist vel með netnotkun barna sinna og setji reglur í kringum tölvunotkun. Við hvetjum foreldra til að kynna sér upplýsingarnar sem finna má á heimasíðu samtakanna.
Skólastjórnendur
Fréttir af árshátíð
Árshátíðin hefur gengið vel hjá okkur og greinilegt að nemendur og kennarar hafa lagt mikla vinnu í atriðin. Að gefnu tilefni minnum við á að síðasti skóladagur fyrir páskafrí er föstudagurinn 26. mars, en þá leggjum við námsbækurnar til hliðar og gerum eitthvað skemmtilegt og slöppum af eftir góða árshátíð. Kennsla hefst að nýju eftir páskafrí miðvikudaginn 7. apríl samkvæmt stundaskrá.
Sjá myndir frá árshátíð.
Myndir frá árshátíðarkvöldverði í Mímisbrunni
Skipulag á árshátíð 1.-4. bekkur
Skipulag á árshátíð 5.-6. bekkur
Spurningakeppnin
Okkar fólk verður í sjónvarpi N4 kl. 18:30 á morgun miðvikudag. Þar etja þau kappi við Lundaskóla. Eins og áður hefur komið fram þá keppa fyrir okkar hönd þau: Stefanía, Björgvin Theódór og Jóhann Ólafur.
Ágætu foreldrar/forráðamenn nemenda í 10. bekk!
Með bréfi þessu vill mennta- og menningarmálaráðuneytið upplýsa foreldra/forráðamenn nemenda í 10. bekk um framkvæmd innritunar í framhaldsskóla í vor. Þar sem nemendur í 10. bekk eru ólögráða er samþykki foreldra/forráðamanna þeirra áskilið við innritun í framhaldsskóla. Ekki er mögulegt að fá staðfestingu forráðamanna á rafrænni umsókn en ráðuneytið lítur svo á að með því að upplýsa um fyrirkomulag innritunar sé tryggt að foreldrar/forráðamenn fylgist með innritun barna sinna. Sjá meira.
Rútuskipulag fyrir Árshátíð
Árshátíð Dalvíkurskóla
Góður árangur nema Tónlistarskólans "NÓTAN", uppskeruhátið tónlistarskóla fer fram í þremum hlutum, þ.e. innan einstakra tónlistarskóla, síðan á svæðisbundum tónleikum á fjórum stöðum á landinu og að lokum á tónleikum á landsvísu í Langholtskirkju. Tvö af þeim átta atriðum sem munu taka þátt í lokatónleikunum fyrir sunnan koma frá Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar. Föstudaginn 13. mars fóru fram svæðisbundnir tónleikar á Akureyri. Þar tóku þátt 10 tónlistarskólar frá Norður- og Austurlandi. Samtals voru tónlistaratriðin 30 og hver skóli fékk úthlutaðan tíma í samræmi við nemendafjölda. Tónlistarskóli Dalvíkurbyggðar fékk 8 mínutur. Fyrir hönd skólans spiluðu þær Jónína Guðmundsdóttir á gítar, Melkorka María Guðmundsdóttir og Kristín Valsdóttir voru með samspil á fiðlu og pianó og Melkorka María á píanó. Samtals voru 9 viðurkenningar veittar, 3 viðurkenningar fyrir grunnnám, 3 fyrir miðnám og 3 fyrir framhaldsnám. Átta atriði komust áfram til Reykjavíkur á tónleikana í Langholtskirkju, sem fara fram 27. mars. Ánægjulegt er að greina frá því hér að tvö þessara atriða eru frá Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar. Það er annars vegar Jónína og hins vegar Kristín og Melkorka með samspil. Kennarar sem voru með þessum nemendum voru: Helga Bryndís Magnúsdóttir, Zsuzsanna Bitay og Þorvaldur Eyfjörð kristjánsson. Lokatónleikarnir í Langholtskirkju fara fram 27. mars næstkomandi
Spurningakeppni Grunnskólanna (15.mars 2010)
Lið Dalvíkurskóla er komið í undanúrslit í spurningakeppni grunnskólanna á Norðurlandi Veistu svarið. Þau Stefanía, Jóhann og Björgvin höfðu betur í viðureignum sínum við Lundaskóla og Glerárskóla. Undanúrslitin verða á næstunni en nákvæm tímasetning verður auglýst síðar.
Heimsókn í 1. bekk
Þrjá síðastliðna föstudaga höfum við í 1. bekk haft hjá okkur góða gesti, elstu börnin af Kátakoti sem byrja í skólanum í haust. Við ákváðum að breyta skipulagi heimsóknanna nú á þessari önn. Undanfarna vetur hafa krakkarnir komið í eina kennslustund í einu, en nú komu þau strax klukkan átta og tóku þátt í öllum skóladeginum með okkur, þrjá föstudaga í röð, í þremur hópum. Á föstudögum byrjum í útikennslu, síðan er einhverskonar skýrslugerð að loknum nestistíma. Í síðasta tíma fyrir hádegið er síðan valtími, þá geta krakkarnir valið sér viðfangsefni; perla, kubba, teikna, bílaleik og fleira. Gestirnir okkar borða síðan hádegismatinn með okkur áður en þau fara aftur á leikskólann. Sjá myndir.
Sigur í Skólahreysti
Lið Dalvíkurskóla, skipað þeim Önnu Kristínu, Stefaníu, Jóni Bjarna og Hilmari, sigraði í Norðurlandsriðli Skólahreysti í gær, en keppnin var haldin á Akureyri. Með sigrinum öðlast liðið þátttökurétt á lokakeppninni sem haldin verður í Reykjavík 29. apríl. Liðið stóð sig frábærlega vel. Anna Kristín sigraði í hreystigreip og lenti í 5. sæti í armbeygjum. Hilmar lenti í öðru sæti í dýfum og þriðja sæti í upphýfingum og Jón Bjarni og Stefanía lentu í 3.-4. sæti í hraðabrautinni. Úrslit riðilsins má finna hér. Krakkarnir hafa æft sig undanfarið undir leiðsögn Ásu Fannar, íþróttakennar, og nú tekur við frekari undirbúningur fyrir úrslitakeppnina. Við óskum krökkunum og Ásu Fönn til hamingju með þetta. Sjá myndir.
Nánari útlistun
Fimmti og sjötti riðill í Skólahreysti MS fóru fram í Íþróttahöllinni á Akureyri fimmtudaginn 11.mars.Fyrri riðill voru skólar af Norðurlandi utan Akureyrar og seinni riðill voru skólar frá Akureyri,Þelamörk,Hrafnagili og Húsavík.
Íþróttahöllinvar þétt setin í fyrri riðli og rafmögnuð stemningí seinni riðli troðfull út úr dyrum.Það var setið og staðið alls staðar og spennan og stuðið í húsinuólýsanleg Jónsi sem stjórnar fjörinuengum líkur.
Eftir gríðarlega jafna og spennandi baráttu í Norðurlandsriðli ði lið Dalvíkurskólameð 48 stigum.
Þetta voru þau Hilmar Daníelsson( 30 dýfur og 28 upphífingar) og Anna Kristín Friðriksdóttir( 19 armbeygjur og 3.06 mín í hreystigreipi) tóku upphífingar,dýfur armbeygjur og hreystigreip.Svo voru það Stefanía Aradóttir og Jón Bjarni Hjaltason sem tóku hraðaþrautina.ð erum afar stolt af okkar krökkum.
Annað sæti hreppti lið Varmahlíðarskóla. Þau Þóra Kristín Þórarinsdóttir og Jón Helgi Sigurgeirsson sigruðu hraðaþrautin á glæsilegum tíma eða 02:37 mín.Þau náðu í stig og aðeins einu stigi frá sigursæti.
Grunnskóli Siglufjarðar lenti í þriðja sæti með 44 stig.Guðrún Ósk Gestsdóttir sigraði armbeyjur, tók 58 stk og Hilmar Símonarson sigraði bæði upphífingar og dýfur. Tók 32 upphífingar og 40 dýfur.Frábær árangur hjá þeim báðum.
4.sæti Árskóli með 39,5 stig. 5.sæti Reykjahlíðarskóli með 35 stig. 6.sæti Grenivíkurskóli með 25,5 stig. 7.sæti Gr.Hofsósi með 22 stig. 8.sæti Gr.á Blönduósi með 17 stig og 9.sæti Húnavallaskóli með 16,5 stig.
Giljaskóli sigraði seinni riðilinn.
Spurningakeppni
Spurningakeppni grunnskóla á Norðurlandi verður haldin 12. og 13. mars. Dalvíkurskóli sendir lið til keppninnar og er það skipað þeim: Björgvini og Stefaníu úr 10. bekk og Jóhanni í 8. bekk. Keppt er með útsláttarfyrirkomulagi og í fyrstu umferð mætir liðið okkar liði Lundaskóla. Viðureignin fer fram í Brekkuskóla á föstudag kl. 14:00 og eru allir velkomnir.
Söngkeppni Samfés
Síðastliðna helgi var haldin árleg Samfés hátíð í Laugardagshöllinni í Reykjavík. Á föstudagskvöldinu fór fram Samfésball/tónleikar þar sem fram komu Ingó og Veðurguðirnir, Jeff Who, 32C, Páll Óskar og fjöldi unglingahljómsveita. Óhætt er að segja að þarna hafi verið mikið stuð en um 4.700 ungmenni úr félagsmiðstöðvum landsins sóttu viðburðinn.
Á laugardeginum fór fram Söngkeppni Samfés. Þar voru 30 tónlistaratriði sem flytjendur færðu okkur á sviði og kepptu um hylli dómnefndar og áhorfenda. Keppnin var í beinni útsendingu á Skjá einum og einnig á Rás 2. Frábært framtak hjá Samfés og þessum aðilum! Okkar framlag var í höndum hljómsveitarinnar „Copy/Paste“ en hana skipa Gyða Jóhannesdóttir (bassi/söngur), Arinbjörn Guðmundsson, Dagur Halldórsson og Kristinn Hauksson (allir á gítar) og Valþór Hilmarsson (trommur). Þau fluttu frumsamið lag, „Skinkurokk“. Til að gera langa sögu stutta þá hrepptu þau þriðja sætið og voru vel að því komin. Það má segja að þetta hafi sett punktinn yfir i-ið hjá okkar ferðalöngum sem voru tæplega 60 talsins að þessu sinni. Ferðin gekk vel og snurðulaust fyrir sig og reyndust ferðalangar eins og alltaf félagsmiðstöðinni sinni og sveitarfélaginu til sóma.
Skólahreysti (4.mars 2010)
Nemendur í Dalvíkurskóla fóru til Ólafsfjarðar sl. þriðjudag og kepptu í skólahreysti.Nemendur í 7. – 10. bekk höfðu keppnisrétt.Það stóðu allir sig vel og við munum á næsta ári halda samskonar keppni milli skólanna.
Þau sem hlutu verðlaun í hraðabraut voru:
10. bekkur:Jón Bjarni Hjaltason og Stefanía Aradóttir
9.bekkur:Hafsteinn Máni Guðmundsson og Júlía Ýr Þorvaldsdóttir
8.bekkur:Richard Helgi Richardsson
7.bekkur:Birkir Stefánsson og Birta Jónsdóttir
Dýfur og upphýfingar vann Hilmar Daníelsson og Stefanía Aradóttir vann armbeygjur og hang.
Sá skóli sem hafði fjóra bestu tíma( 2 stelpur og 2 strákar) í hraðabraut vann
Tröllaskagabikarinn.Ólafsfirðingar fengu bikarinn að þessu sinni.Við stefnum að sjálfsögðu að vinna hann tilbaka á næsta ári.
Fimmtudaginn 11. mars förum við til Akureyrar og keppum í aðalkeppninni.
Í liði Dalvíkurskóla verða:
Hraðabraut :Jón Bjarni Hjaltason og Stefanía Aradóttir
Dýfur/upphýf:Hilmar Daníelsson
Armb./hanga :Anna Kristín Friðriksdóttir
Hér má sjá myndir frá keppninni í Ólafsfirði
Stóra Upplestrarkeppnin (4.3.2010)
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar var haldin í Bergi miðvikudaginn 3. mars. Þar mættust keppendur frá Grunnskóla Ólafsfjarðar, Dalvíkurskóla og Árskógarskóla. Sigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir, Ólafsfirði, sigraði. Í öðru og þriðja sæti lentu okkar menn þeir Sindri og Valdimar. Til hamingju með það strákar. Við viljum þakka öllum þeim sem komu að undirbúningi keppninnar kærlega fyrir. Hér má sjá myndir.
Útivistardagur (3.mars 2010)
Útivistardagur í yngri deild Dalvíkurskóla var haldinn þriðjudaginn 2. mars og var hann afar vel heppnaður í alla staði. Veðurguðirnir sýndu sínar bestu hliðar, það var svolítið kalt fyrst um morguninn, en svo dró ský á himininn og frostið minnkaði. Börnin léku á als oddi og nutu sín á sleðum, snjóþotum og skíðum, sumir voru að renna sína fyrstu ferð á skíðum og gekk bara vel!
Myndirnar tala sínu máli.
Myndir frá útivistardegi eldra stigs
Eineltihringurinn (1.mars 2010)
Föstudaginn 26. febrúar fórum við í 6.bekk í skemmtilegan spuna með eineltishringinn sem leiðarljós. Krakkarnir skiptu sér niður í 5-7 manna hópa, þar sem að bæði kynin urðu að vera í hópnum og einnig nemendur úr bæði 6.GS og 6.LB. Þannig urðu hóparnir fjölbreyttir. Þau áttu að setja sig í hlutverk og staðsetja þessi hlutverk í Eineltishringnum, þar sem einn í hópnum varð að vera gerandi, einn þolandi og einn verndari og hinir í hópnum áttu að vera einhverjir aðrir í eineltishringnum. Krakkarnir fengu síðan 15 mínútur til að setja upp smá leikþátt sem þau svo sýndu bekknum. Eftir hvern leikþátt var reynt að staðsetja þá sem voru í hverjum leikþætti í Eineltishringnum. Krökkunum fannst þetta mjög gaman og hér má sjá myndir frá þessari kennslustund.
Lífshlaupið (25.feb. 2010)
Við í 6.bekk tókum þátt í lífshlaupinu dagana 3. – 23.febrúar. Lífshlaupið er hvatningarleikur sem skólar geta tekið þátt í, þar sem nemendur eru hvattir til að hreyfa sig í 60. mínútur á dag í 20 daga. Nánari upplýsingar má sjá inná http://www.lifshlaupid.is
Krakkarnir í 6.bekk hafa verið mjög dugleg við að hreyfa sig og er gaman að sjá þau leggja sig fram við að hreyfa sig.
Í hverri viku var einn bekkur sem tók þátt ílífshlaupinu dreginn út á Rás 2 og vorum við svo heppin að vera dregin út og fengum við sendan ávaxtabakka sem krakkarnir voru alsælir með og smökkuðust ávextirnir mjög vel. Sjá myndir.
Undankeppnin fyrir Stóru upplestrarkeppnina.
Hin árlega upplestrarkeppni nemenda í 7. Bekk verður haldin í Bergi menningarhúsi miðvikudaginn 3. Mars kl. 14. Ávallt er undankeppni fyrir aðalkeppnina og að þessu sinni voru þær tvær. Upp úr fyrri undankeppninni komust 14 nemendur og kepptu þeir sín á milli um að verða fulltrúar Dalvíkurskóla þetta árið. Nemendur lásu texta og ljóð sem þeir völdu sjálfir fyrir keppnina. Fjórir komust áfram upp úr seinni undankeppninni og eru það þau: Björn Hrannar, Sindri, Valdimar og Viktoría Katrín sem fara fyrir hönd Dalvíkurskóla í Stóru upplestrarkeppnina. Dómarar í fyrri undankeppninni voru þau Friðrik Arnarson og Margrét Laxdal en í seinni keppninni voru það þær Helga Björt Möller, Hörn Harðardóttir og Kristrún Sigurðardóttir. Allir nemendur 7. bekkjar fengu viðurkenningu fyrir þátttöku í upplestrarkeppninni og mun bekkurinn í heild sinni mæta í Berg á Stóru upplestrarkeppnina.Í sjálfa aðalkeppnina eigum við fjóra fulltrúa, Grunnskóli Ólafsfjarðar verður með þrjá fulltrúa og Árskógarskóli verður með einn fulltrúa. Foreldrar og aðrir aðstandendur eru hjartanlega velkomnir. sjáið þið nokkrar myndir frá keppninni sem haldin var í sal Dalvíkurskóla mánudaginn 22. Febrúar.
Í tilefni konudagsins
Skemmtilegur öskudagur.
Það var mikið líf og fjör í Dalvíkurskóla á öskudaginn.
Margar skrýtnar og skemmtilegar kynjaverur birtust snemma að morgni hjá okkur og tóku þátt í gleði og leikjum allan daginn.
Eftir bæjarrölt og söng fengu allir nemendur hressingu, pylsu og safa. Að því loknu var öskudagshátíð sem eldri nemendur skólans skipulögðu ásamt starfsfólki. Þessi dagur heppnaðist vel og viljum við þakka nemendum og foreldrum fyrir góðan og skemmtilegan dag. sjá myndir
Öskudagur í DalvíkurskólaEins og fram kemur á skóladagatali Grunnskóla Dalvíkurbyggðar er öskudagur skóladagur nemenda. Meginhugsunin er sú að koma í veg fyrir að nemendur verði ekki einir og taki ekki þátt í öskudagsgleðinni. Skólinn er þátttakandi í Olweusarverkefninu gegn einelti og teljum við okkur draga úr erfiðleikum margra nemenda með því að skipuleggja þennan dag á vegum skólans. Skólastarfið verður brotið upp þennan dag og hefðbundin stundatafla lögð til hliðar. Við ætlum að eiga skemmtilega stund saman í skólanum, kennarar, starfsmenn nemendur og foreldrar. Nemendur mæta eins og vanalega kl. 8:00 með hollt og gott nesti eins og aðra daga en eitthvað öðruvísi til fara. Vopn sem fylgihlutir verða leyfð en ekki til að berjast með.
Leiklist hjá unglingum.
Leiklistarhópur unglingadeildar Dalvíkurskóla frumsýnir nýtt leikverk þann 19.febrúar næstkomandi í Ungó. Nefnist það verk „Frá upphafi til enda...“. Dalvíkurskóli og Leikfélag Dalvíkur eru nú enn og aftur í samstarfi í tengslum við leiklistarvinnu með unglingum í Dalvíkurbyggð. Er þetta í fimmta sinn sem samstarf af þessu tagi er tekið upp. LD leggur fram æfingarhúsnæði til afnota í 6 vikur fyrir þessa vinnu, endurgjaldslaust og félgasmenn aðstoða auk þess varðandi búninga, leikmuni og fleira.
..lesa meira..
Tilkynning frá Bókasafni Dalvíkurbyggðar
Viltu taka þátt í að velja bestu barnabók liðins árs
Á bókasafninu er nú hafin atkvæðagreisla um bestu barnabók liðins árs fyrir börn á aldrinum 6-12 ára.
Hægt er að greiða atkvæði til 15. mars n.k. Hver lesandi má velja allt að 3 bækur.
Úrslitin verða kynnt á landsvísu á Sumardaginn fyrsta þann 22. apríl, við hátíðlega athöfn í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15, Reykjavík. Tvær bækur verða verðlaunaðar, ein frumsamin íslensk og önnur þýdd.
Að því loknu verða tveir heppnir þátttakendur í Dalvíkurbyggð dregnir út og hreppa bókagjöf.
Tónlistardagur í yngri deild (2.feb. 2010)
Mánudaginn 1. febrúar var tónlistardagur í 1.-6. bekk, yngri deild Grunnskóla Dalvíkurbyggðar. Dagurinn var skipulagður í góðu samstarfi kennara Tónlistarskólans og Grunnskóla Dalvíkurbyggðar. Hálfan morguninn voru börnin í Tónlistarskólanum, þar sem tónlistarkennararnir kynntu sín hljóðfæri; Zsuzsanna kynnti fiðluna, Helga Bryndís píanóið, Helgi málmblásturshljóðfærin, Valdi gítarinn, Ave harmonikkuna og Páll tréblásturhljóðfærin Nutu þau fulltingis nemenda sinna sem spiluðu á hljóðfærin og aðstoðuðu þannig við kynninguna. Hinn hluta morguns voru nemendur uppi í skóla, þar sem boðið var upp á fjórar smiðjur; Magni Ásgeirs söng með krökkunum, Hjöri bauð uppá hljóðfæragerð, Þóra og Inga Magga kenndu þjóðdansa og Ármann Einarsson frá Tónlistarskóla Akureyrar sá um skemmtilega vinnu með rythma, þar sem nemendur slógu taktinn á líkama sínum og lærðu nokkur dansspor. Skapandi starf er mikilvægur þáttur í leik og starfi skólabarnanna. Tónlistarsköpun, tjáning og dans eflir skapandi hugsun, þjálfar einbeitingu og félagsþroska. Rannsóknir hafa sýnt að tónlist hefur góð áhrif á líðan okkar og þroska. Hún eflir alhliða þroska nemenda og hefur mikið persónulegt gildi fyrir hvern einstakling. Með því að skipuleggja dag eins og tónlistardaginn viljum við mynda jákvætt viðhorf til tónlistarinnar og minna á að tónlistin á erindi við okkur öll!
Kærar þakkir fyrir frábæran dag!
Kennarar Grunnskóla Dalvíkurbyggðar og Tónlistarskóla Dalvíkur.
Heimsókn í Mímisbrunn (21. jan.2010)
Sú skemmtilega hefð hefur skapast í Dalvíkurskóla að eldri borgarar bjóða nemendum í spilastund í Mímisbrunn. Þessar samverustundir eru afar mikilvægar og gefandi fyrir nemendur okkar og eins og sjá má á myndunum þá er stemmningin alltaf góð og allir fá notið sín. Í lok stundarinnar er nemendum boðið upp á safa og heimabakað meðlæti sem þeir kunna vel að meta. Við erum afar þakklát eldri borgurum fyrir þessar yndislegu samverustundir.
Fréttir frá 3. bekk (21. jan. 2010)
Á fimmtudaginn 15. janúar var dótadagur hjá okkur í 3. bekk. Krakkarnir fengu að koma með leikföng að heiman og fengu svo heila kennslustund til að leika sér saman. Allt gekk þetta vel og skemmtu krakkarnir sér vel saman. Voru duglegir að skiptast á dóti og leyfa bekkjarfélögum að prófa sitt. Sjá myndir hér.
Á þriðjudaginn 19. janúar fórum við í Mímisbrunn og spiluðum við eldri borgara. Bekknum var skipt í 2 hópa og spiluðum við í um klukkustund í senn, hvor hópur. Eftir spilastundina buðu gestgjafarnir uppá snúða, vínarbrauð og djús við mikinn fögnuð krakkanna sem hámuðu í sig gómsætt sætabrauðið. Allir sýndu sínar bestu hliðar. Myndir frá þessu væntanlegar.
Fjör í fyrsta bekk (18.jan. 2010)
Föstudagurinn 15. janúar 2010 var „öðruvísi“ dagur í 1. bekk.
Við byrjuðum á því að fara upp á Stórhól í útikennslunni með vasaljós til að skoða hvað hefði breyst síðan við vorum þar í haust. Við fundum einhverjar plöntur, beitilyng, krækiberjalyng og rjúpnalauf sem teygðu sig upp úr snjónum, svo var líka miklu dimmara en síðast. Svona sjáum við muninn á árstíðunum, hvernig náttúran okkar breytist. Áður en við fórum heim í skóla aftur, renndum við okkur á harðfenninu niður Stórhólinn. Hann Mikael Smári var að kveðja okkur, en hann er að flytja til Hafnarfjarðar. Í því tilefni bauð hann uppá skúffuköku og fleira gómsætt í nestistímanum.Við óskum honum góðrar ferðar og þökkum fyrir samveruna í vetur. Eftir nestistímann sungum við saman, fórum í skemmtilega leiki og enduðum á nuddhring og stuttri sögustund. Ekki spillti svo fyrir að fá pylsur í brauði í matinn! Gestirnir okkar, þær Veronika Jana og Anna Hlín frá Kátakoti skemmtu sér vel eins og við öll.
koma svo myndir frá þessum skemmtilega degi í 1. bekk.
Dótadagur í 2.bekk (11.jan.2010)
Við í öðrum bekk vorum með dótadag síðastliðinn föstudag. Þar kenndi ýmissa grasa, margir komu með nýju jólagjafirnar sínar og má með sanni segja að það hafi verið líf og fjör og að gleðin og leikurinn hafi skinið úr andlitum barnana. Sjá myndir.
Náttúrufræði hjá 5. bekk. (10. jan. 2010)
Við fórum austur á sand og krakkarnir gerðu fígúrur úr ýmsu sem varð á vegi þeirra í fjörunni. má sjá nokkrar myndir...
Friðarganga (10.jan. 2010)
Nemendur og starfsfólk í Dalvíkurskóla ásamt foreldrum fóru í friðargöngu frá skólanum að kirkjunni. Vinabekkir gengu saman og kennarar báru kyndla. Séra Magnús tók á móti hópunum, færði hverjum árgangi eitt friðarkerti sem nemendur kveiktu á og lögðu við minnisvarðann í kirkjugarðinum. Magnús talaði til barnanna um frið, einelti og vináttu og endaði stundin á fallegri friðarbæn. Nauðsynlegt er að ræða við börn um lífsgildið friður og miklivægi þess að hugsa jákvætt um sjálfan sig og aðra.
Sjá myndir hér.
Myndir frá litlu jólum
Hér má sjá myndir sem teknar voru á litlu jólunum.
Góður bekkjarfundur í 4. Bekk. (17.des.2009)
Á bekkjarfundi hjá 4. bekk hlustuðu nemendur á hugljúfa sögu um vináttu og einmannleika
Eftir það rætt um boðskap jólanna, vináttu og góðvild og það að hugsa til þeirra sem eru einmanna.
Nemendur tóku virkan þátt í umræðum og lögðu sitt til málanna. Sjá myndir
Háttvísi og hegðun (17.des.2009)
Þórir Áskelsson formaður barna og unglingaráðs UMFS kom í gær og heimsótti nemendur í 3.-7. bekk og 10. bekk.
Hann ræddi við nemendur um háttvísi og hegðun á knattspyrnuvelli, virðingu, vináttu og ábyrgð. Einnig ræddi hann um bendover . Nemendur hlustuðu vel og tóku þátt í umræðum og Þórir svarði mörgum spurningum sem brunnu á vörum þeirra. Við erum afar þakklát Þóri fyrir hans innlegg í þessa nauðsynlegu umræðu og vonumst til að nemendur geti notið þess að spila fótbolta í vináttu og gleði. Þórir mun koma aftur í heimsókn og ræða við þá bekki sem eftir eru. Sjá myndir.
Íslandsmet (15.des.2009)
Hún Stefanía Aradóttir setti Íslandsmet í 13-14 ára flokki með kvennasleggju ( 4 kg )á vetrarkastmóti UMSE/UFA sem haldið var á Hrafnagili. Stefanía kastaði 34,73 m og bætti gamla metið sem var í eigu Eirar Starradóttur um tæpa fimm metra. með þessu kasti var Stefanía einungis 27 cm frá afrekslágmarki 15 ára unglinga og tæpum 3 metrum frá Íslandsmeti 16 ára og yngri. Á næstu dögum mun hún keppa meira í sleggjukasti og verður forvitnilegt að vita hvort hún muni ekki slá þetta met enn frekar.
Til hamingju Stefanía.
Litlu jólin
Hér fyrir neðan er skipulag litlu jóla. Nánari upplýsingar fást með því að smella á tenglana.
Litlu jólin 4.-6. bekkur
Litlu jólin eldra stig
Grallarar að baka (10.des. 2009)Grallararnir nýttu sér heimilisfræðistofuna í dag og bökuðu smákökur. Eins og sjá má á þá voru allir glaðir og ánægðir með árangurinn.
Fréttir úr 1. bekk (10.des.2009)
Á mánudaginn var buðum við foreldrum, öfum og ömmum til okkar í heimsókn. Tilgangurinn var að sýna þeim hvað við vorum búin að læra í tónmenntatímum hjá Þóru. Við sungum fyrir þau nokkur lög, síðan dönsuðum við tvo hringdansa og enduðum með því að syngja tvö indjánalög. Einn afinn átti afmæli og var því sunginn afmælissöngurinn fyrir hann. Haft var samband við baksturshóp foreldra og gátum við því boðið uppá skúffuköku og muffins með kaffinu á eftir. Þessi dagstund með gestum okkar var afar ánægjuleg og erum við mjög sæl yfir því hve góð mætingin var.
Hér getið þið séð myndir úr partýinu!
Grallarafréttir (8.des. 2009)Til þess að komast í jólaskap fóru nokkrir nemendur til Herborgar ritara og hengdu upp jólaseríu í fallega grenitréið hennar, hurðakrans og fleira jólaskraut utandyra. Útidyratröppurnar voru einnig mokaðar með glæsibrag. Herborg bauð svo öllum inn í kakó og smákökur. Þetta er í annað sinn sem nemendurnir fara til Herborgar og var það ákveðið að gera þetta að hefð á aðventunni ár hvert. Sjá myndir
Grallararnir tóku sig til um daginn og bökuðu í námsverinu. Það var ótrúlega gaman hjá þeim og tala myndirnar sínu máli.
Kertagerð í 6.bekk (8.des. 2009)
6. bekkur var með bekkjarkvöld síðasta fimmtudagskvöld og voru í kertagerð. Afraksturinn var góður og þökkum við þeim mæðrum sem komu og aðstoðuðu okkur. eru myndir frá þessum degi.
Reykjaferð 7. EA (3.des. 2009)
Vikuna 23. Til 27. Nóvember fór krakkarnir í 7. EA í skólabúðir á Reykjum ásamt kennara sínum og þeim Ragnhildi (mamma Haraldar) og Lilju Rós (systir Haraldar). Skólarnir sem fóru með okkur voru, Árskógarskóli, Grunnskóli Ólafsfjarðar, Grunnskóli Siglufjarðar og Klébergsskóli á Kjalarnesi.
Allir skemmtu sér konunglega og fóru margir á kostum í þessari ferð. Krakkarnir unnu í hópum og fóru m.a. í náttúrufræði, á minjasafnið, unnu verkefni í sambandi við peninga, stöðvaleik og íþróttir. Á kvöldin voru kvöldvökur þar sem nemendur skólanna komu fram með skemmtiatriði og eftir síðustu kvöldvökuna var diskótek.
Hópurninn okkar safnaði að sér nokkrum verðlaunum þessa vikuna. Kolbrún vann hina frægu hárgreiðslukeppni þar sem stelpur áttu að greiða strákum. Björgvin Rafn var módelið hennar og má sjá á meðfylgjandi myndum greiðsluna hans, einnig komust fleiri frá Dalvíkurskóla í undanúrslit í þessari keppni. Viktor Daði vann borðtenniskeppnina og Valdimar hafnaði í 3. Sæti. Einnig fékk hópurinn hrós fyrir hegðun og mikið talað um hvað þau væru lífsglöð og skemmtileg. Endilega kíkið á myndirnar frá þessari skemmtilegu ferð.
Fjör hjá 5. bekk (1. des. 2009)
Það var sko fjör hjá 5. bekk á bekkjarfundi þegar stelpurnr komu strákunum á óvart, sjáið myndirnar.
Eineltisleikur (30. nóv. 2009)
Nokkuð hefur borið á því að nemendur séu í bendover á fótboltavellinum. Leikurinn gengur út á að einn er í marki sem á að reyna að ná boltanum, en hinir reyna að skora hjá honum og ef þeim tekst það nokkrum sinnum þá á sá sem er í markinu að snúa rassinum að hinum og þeir mega sparka boltanum í hann. Þessi leikur er ekki leyfður í skólanum enda bíður hann upp á einelti og á síðustu vikum höfum við fengið kvartanir frá kennurum, foreldrum og nemendum. Foreldrar eru hvattir til að ræða við börnin og eins munu kennarar ræða um þetta í skólanum.
Skólastjórnendur
Jólaföndurdagur (30.nóv.2009)Síðastliðinn föstudag var árlegur jólaföndurdagur í Dalvíkurskóla. Dagurinn tókst í alla staði mjög vel og viljum við þakka öllum þeim fjölmörgu sem lögðu leið sína í skólann kærlega fyrir komuna. Hér eru myndir
Kettlingar í heimsókn hjá 3. MA
Í dag fengum við góða heimsókn. Bogga á Krossum kom með 6 yndislega og pínulitla kettlinga í heimsókn til okkar í dag. Þeir eru aðeins 10 daga gamlir og voða krúttlegir. Krakkarnir fengu að knúsa þá og passa nánast alla fyrstu lotuna. Margir vildu fá að eiga einn og munu örugglega einhverjir fara fram á að eignast eins og eina litla kisu...Takk Bogga fyrir þessa góðu heimsókn. Sjá myndir hér.
Jólaföndurdagur og fl. (26. nóv. 2009)
Á morgun verður Föndurdagur fjölskyldunnar í Dalvíkurskóla, kl. 15:30 - 19:30.
Nemendur og fjölskyldur þeirra geta þá keypt efni til föndurgerðar í skólanum á vægu verði (frá ca. 100 – 1500 kr). Hafið með ykkur skæri, límstauk, liti (túss/tré), að jólaskapinu ógleymdu. Ekki senda börnin ein.
Nemendur í 10. bekk verða með kaffisölu í hátíðarsalnum til styrktar ferðasjóði sínum.
Kaffihlaðborð kostar kr. 800 fyrir fullorðna, kr. 400 fyrir börn á skólaaldri og ókeypis er fyrir börn undir skólaaldri.
Eldvarnarvika hjá 3. MA
Þessa vikuna efnir landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna til eldvarnarviku og var okkur í 3. MA boðið að taka þátt. Að því tilefni kom Sigurður Jónsson slökkviliðsstjóri í heimsókn til okkar í gær og spjallaði við okkur um þær eldhættur sem skapast nú í kringum jól og áramót. Krakkarnir fengu bækur, bæklinga, vasaljós og fl. að gjöf. Að þessu loknu áttum við að fá að skoða brunabílinn en vegna veðurs þá ákváðum við að fresta því um sinn.
En Sigurður minnti á að nú er rétti tíminn til að skipta um í reykskynjurum heima.
Sýning á munum nemenda í 1.-5. bekk.
Dagan 20. – 26. nóvember verða til sýnis í Bergi ýmis verk nemenda úr list og verkgreinum. Við hvetjum foreldra til að líta við í menningarhúsið og sjá þessa fallegu hluti eftir nemendur sem er sýnishorn af þeirri vinnu sem unnnin hefur verið það sem af er vetri.
Frétt frá 6.bekk (20. nóv. 2009)
6.bekkur er búin að vera að vinna verkefni er tengist Snorra Sturlusyni. Enduðum við þá vinnu á því að bjóða foreldrum á sýningu í skólann. Þar sem sýndir voru Örlygsstaðabardagi og fall Snorra, einnig voru lesin ljóð og minningagreinar. Þetta er búin að vera skemmtileg vinna og gaman að sjá hvað margir foreldra lögðu leið sína í skólann til að sjá hvað krakkarnir þeirra eru búin að vera að gera. Hér eru myndir af sýningunni.
- Fréttatilkynning -
Að gefnu tilefni viljum við vekja athygli á að á morgun, föstudaginn 20. nóvember, hefur verið boðaður svokallaður „Kick a ginger day” á Facebook. Í því felst að sparka megi í þá sem rauðhærðir eru og er fólk beinlínis hvatt til þess. Heimili og skóli og framkvæmdastjóri Olweusar-áætlunarinnar á Íslandi telja að með þessu háttalagi sé verið að hvetja til ofbeldis sem felur í sér niðurlægingu og virðingarleysi. Við beinum þeim tilmælum til skólastjórnenda að vekja athygli foreldra og nemenda á því að skólinn muni ekki líða slíka háttsemi. Því mælumst við til þess að foreldrar og aðrir forráðamenn verði upplýstir í dag og gert grein fyrir hvernig skólinn muni bregðast við brotum af þessu tagi. Jafnframt verði nemendur hvattir til að taka afstöðu gegn slíku atferli, athygli vakin á gagnkvæmri virðingu og gildi þess að nemendur sýni hver öðrum tillitsemi.
Starfsfólk skólans lítur á ofbeldishegðun sem alvarlegt brot á skólareglum og minnir á viðurlög við slíkri hegðun í skólareglum Grunnskóla Dalvíkurbyggðar.
Jólaföndurdagur og fl. (18. nóv. 2009)
Þann 27. nóvember næstkomandi verður Föndurdagur fjölskyldunnar í Dalvíkurskóla, kl. 16:00 - 19:30.
Nemendur og fjölskyldur þeirra geta þá keypt efni til föndurgerðar í skólanum á vægu verði (frá ca. 100 – 1500 kr). Hafið með ykkur skæri, límstauk, liti (túss/tré), að jólaskapinu ógleymdu. Ekki senda börnin ein.
Nemendur í 10. bekk verða með kaffisölu í hátíðarsalnum til styrktar ferðasjóði sínum.
Kaffihlaðborð kostar kr. 800 fyrir fullorðna, kr. 400 fyrir börn á skólaaldri og ókeypis er fyrir börn undir skólaaldri.
Viðburðadagatal í desember
Þemadagar 6. bekk (18.nóv.2009)
Nú eru þemadagarnir búnir og gerðum við í 6.bekk könnun þar sem við spurðum um endurvinnslu, lífræntræktaðan mat, hvernig fólk kemur sér í vinnu og hvort fólk hugi að vatns- og rafmagnsnotkun sinni. Krakkarnir löbbuðu um allan bæinn og heimsóttu fyrirtæki bæjarins og spjölluðu við bæjarbúa sem þau rákust á. Unnum við svo úr upplýsingunum saman á töflu, nokkrir nemendur ræddu við bæjarstjórann okkar og fannst henni þessi könnun alveg mögnuð og bað okkur um að koma niðurstöðunum á framfæri og munum við reyna það. Á fimmtudaginn fórum við svo í göngutúr og tókum með okkur ruslapoka og týndum rusl sem við fundum á leiðinni. Fórum síðan með ruslið inn í stofurnar, skoðuðum það og bjuggum til skúlptúra. Myndir frá þemadögunum má sjá hér.
Fréttir frá 2.SG (12.nóv.2009)
2. Bekkur SG hélt tröllakynningu föstudaginn 6. nóvember síðastliðinn. Þá bauð bekkurinn foreldrum í heimsókn og kynnti tröllaverkefni fyrir þeim, hvernig þau haga sér og hvað gerist þegar tröllinn fara á stjá og einnig tóku þau nokkur tröllalög. Börnin voru gríðarlega ánægð með hvað margir foreldrar mættu og buðu nokkrir foreldrar uppá kaffi og bakkelsi. Sjá myndir
2. Bekkur SG er búinn að vera pæla mikið í umhverfinu flokkun á rusli og þess háttar og fóru þau út og týndu rusl og brotnar trjágreinar á skólalóðinni og voru rosalega ánægð með að fá að gera það í útikennslunni og má segja að skólalóðinn hafi nánast aldrei litið betur út. Svo var þetta flokkað að mestu og sett í tilheyrandi gáma. Sjá myndir
Þemadagar (12.nóv.2009)
Þemavinnan í gær gekk vel. Mikið var unnið úr öllu þessu endurnýtanlegu efni sem við fengum og sköpunargleði nemenda var mikil. Einhverjir eignuðust ný föt t.d gallapils, aðrir gerðu frábær listaverk og ekki var slæmt að mæta í dekurstofuna og fá náttúrulegan maska hjá Adda og krökkunum þar. Einnig lögðu nemendur ýmsar kannanir fyrir bæjarbúa um umhverfismál. Stórt ruslaskrímsli úr pappamassa er við það að fæðast í myndlistarstofunni hjá Skapta og nemendum þar. Sjá myndir frá þemadögum.
Þemadagar í umhverfismálum (10. nóv. 2009)
Dagana 11. og 12. nóvember verða þemadagar í Grunnskóla Dalvíkurbyggðar.
Nemendur vinna fjölbreytt umhverfistengd verkefni, t.d skoðanakannanir, listsköpun úr ýmsum verðlausum efnum, læra að þekkja ýmis umhverfismerki o.fl. Mikilvægt er upplýsa um umhverfismál, stuðla að jákvæðu viðhorfi til umhverfisins og ábyrgri umgengni.
Tónleikar (6. nóv. 2009)
Ingó og Veðurguðirnir heimsóttu skólann í gær og voru með tónleika í Víkurröst fyrir allan skólann. Mikið stuð var á tónleikunum og krakkarnir tóku vel undir í öllum lögum. Sjá myndir.
Heimsókn á Dalbæ (5.nóv. 2009)
Nú á dögunum fórum við nokkur úr skólanum upp á Dalbæ til að eiga góða stund með heimilisfólkinu þar. Nemendurnir lásu upp ljóð, sungu og svo spjölluðum við um heima og geima. Móttökurnar voru frábærar og allir skemmtu sér vel. Á leiðinni heim fórum við í fjöruna og lékum okkur. Hér má sjá nokkrar myndir.
Góð stemmning á opnum degi í Dalvíkurskóla.
Góð mæting var á opnum degi í síðustu viku.
Nemendur og foreldrar spiluðu saman eða kíktu á bókasafnið og á myndunum má sjá að allir skemmtu sér vel.
3. MA við leik og störf (1.nóv. 2009)
Þriðjudaginn 27. október bauð 3. MA í skemmtun á sal. Við buðum 5 ára börnum af Kátakoti, 1. og 2. bekk í Dalvíkurskóla. Fyrst var sagan lesin og atriðið leikið og síðan tóku Guðný og Þóra við og stjórnuðu söng.
Allir skemmtu sér vel og stóðu 3. bekkingar sig mjög vel í atriðinu þeirra.
Sjá myndir hér
Einnig má sjá myndir af krökkunum í skólastarfi. Undanfarið höfum við verið að vinna með peninga í stærðfræðiskífu, undirbúa framtíðar bankastjóra og viðskiptafræðina. Eins gott að byrja snemma...
Á föstudögum fer helmingurinn af bekknum í tölvur og hinn helmingurinn fer í val í stofunni okkar. Það er alltaf vinsælt að fata sig upp í hinar furðulegustu flíkur og sjá svo hver hefur vinninginn.
Sjá myndir hér.
Gjöf til skólans (1.nóv. 2009)
Bókasafni Dalvíkurskóla barst fyrir skemmstu góð gjöf frá þeim heiðurshjónum Guðmundi Sigurðssyni og Önnu Krístínu Ragnarsdóttur. Þau færðu safninu hátt í 40 myndbandsspólur sem munu koma að góðum notum við tungumálakennslu við skólann. Færum við þeim kærar þakkir fyrir.
Þorgrímur Þráinsson (29.okt.2009)
Um miðjan október mánuð heimsótti Þorgrímur Þráinsson rithöfundur nemendur eldra stigs. Tilgangur heimsóknarinnar var m.a. að kynna og lesa upp úr nýjustu skáldsögu hans Núll núll níu en einnig ræddi hann við nemendur um ýmis málefni sem brunnu á þeim. Miklar umræður sköpuðust m.a. um heilbrigt líferni og þótti nemendum lygilegt að Þorgrímur væri orðinn fimmtugur J Sagðist hann aldrei hafa reykt eða drukkið og að hann stundi reglulegar íþróttir. Hvatti hann nemendur til að hugsa vel um líkamann og fara t.d. út að hlaupa til að tæma hugann og koma endorfín flæðinu af stað. Náði hann virkilega vel til nemenda eldra stigs (og kennara), bæði með upplestrinum en ekki síður spjallinu. Hafa bækur hans á bókasöfnum Dalvíkur runnið út eins og heitar lummur síðan þá J Sjá má myndir hér
Opið hús í Dalvíkurskóla (27. okt. 2009)
Fimmtudaginn 29. október verður opið hús í Dalvíkurskóla frá 17-19. Þar gefst foreldrum tækifæri á að koma með börnum sínum og kíkja á bókasafnið, grípa í spil, spila borðtennis eða spjalla við skólastjórnendur. Heitt verður á könnunni.
Hlökkum til að sjá ykkur,
Skólastjórnendur
Reykingakofi (26.okt.2009)5. bekkur fór í heimsókn í reykingakofann hjá Jóhönnu Skafta. Þar fengu þau að sjá hvernig jólahangikjötið verður til.
Hér eru nokkrar myndir frá heimsókninni.
Frétt frá 1.bekk (26.okt.2009)
Síðasta vika hefur verið á rólegum nótum hjá okkur í fyrsta bekk, enda vikan stutt og nokkuð margir fyrstubekkingar veikir heima. Á föstudagsmorguninnfórum við í gönguferð út í Promens í lögreglufylgd. Við fengum höfðinglegar mótttökur þar, Sævaldur og Friðrik tóku á móti okkur, sýndu okkur framleiðsluna og gáfu okkur síðan endurskinsvesti. Felix ræddi aðeins við krakkana um nauðsyn þess að sjást í umferðinni og hvatti þau til þess að nota vestin á leið í skólann á morgnana.
Áður en við fórum heim aftur fengum við svala og kex og launuðum við fyrir okkur með söng. Kærar þakkir fyrir frábærar mótttökur, Promensmenn!:)
sjáið þið myndir úr ferðinni út í Promens.
Spurningakeppni (14.okt. 2009)
Spurningakeppni eldra stigs var haldin þriðjudaginn 13. október. Til úrslita kepptu lið 7. bekkjar, sem sigraði 9. bekk, og 8. bekkjar sem sigraði 10. bekk í undanúrslitum. Úrslitaviðureignin var æsispennandi en að lokum stóð 8. bekkur uppi sem sigurvegari, svöruðu 37 spurningum rétt en 7. bekkingar svöruðu 32 spurningum rétt. Liðin voru þannig skipuð:
8. bekkur: Jóhann, Aníta og Hafþór
7. bekkur: Dagur, Valdimar og Hanna Rún.
10. bekkur: Stefanía, Björgvin og Þórður
9. bekkur: Arinbjörn, Signý og Sandra
Myndir eru
Forvarnardagurinn var haldinn 30. september síðastliðinn í Dalvíkurskóla. Eitt af markmiðum þessa dags er að virkja nemendur, skóla og samfélagið í heild í baráttunni gegn fíkniefnum. Viðfangsefnin voru: Samvera -Íþrótta- og æskulýðsstarf - ár skiptir máli – og afleiðingar áfengisneyslu. Nemendur 9. bekkjar tóku þátt í verkefninu, sáu myndbandið, Hvert ár skiptir máli, ræddu saman í hópum um viðfangsefni dagsins og gerðu veggspjöld. Í niðurstöðum umræðuhópanna kom m.a. fram að:
Unglingarnir vilja fara í ferðalög, sund, bíó, horfa á myndir og eiga notalega kvöldstund með foreldrum sínum til þess að halda tengslum á unglingsárunum. Stunda íþróttir, því þar er þeir í góðum félagsskap og það minnkar líkurnar á að lenda í einhverju rugli. Allir hóparnir voru sammála um að hvert ár skiptir máli og það að byrja ekki að drekka áfengi á unglingsárunum býður upp á betri heilsu og meiri andlegan þroska en hjá þeim sem byrja ungir að drekka áfengi. Myndir koma síðar
Kynning hjá 10.bekk (6.okt.2009)
Þann 1.október buðu nemendur í 10.AS samnemendum í unglingadeild, foreldrum sínum og starfsfólki skólans til kynningar á verkefni sínu sem bar heitið “Anti-prejudice Campaign”. Verkefnið unnu þau í enskutímum þar sem aðdragandinn var að fjalla um sérkenni fólks og þjóða, hvaða vandamál það geti skapað og hvaða fordómar eru að valda okkur vandræðum. Í framhaldi af því völdu nemendur að beita sér í baráttu gegn kynþáttafordómum. Nemendur unnu í litlum hópum og afrakstur vinnunnar kynntu þeir á sal Dalvíkurskóla. Þar sýndi hver hópur veggspjald með slagorði sem hann hafði hannað og hélt stutta tölu um það. Að auki þarf svo hver hópur að skila inn skýrslu til kennara. Þegar á heildina er litið gekk þetta verkefni afar vel og nemendur mega vera stoltir af framlagi sínu. Flott vinna!! Sjá myndir.
Gróðursetning 7.EA (6. okt.2009)
Jón Arnar garðyrkjufræðingur Dalvíkurbyggðar kom til okkar í skólann miðvikudaginn 23. október og fræddi okkur um gróðursetningu á trjám. Eftir kynninguna fórum við í 7. bekk með honum upp hjá Böggvisstöðum þar sem við gróðursetum 670 plöntur. Þessar plöntur koma úr sjóði sem kallast Yrkja og er það sjóður sem Vigdís Finnbogadóttir lét stofna. Sjóður þessi var stofnaður eftir að Vigdís skrifaði bók sína og lagði inn ágóðan af þeirri bók. Ákveðið var að vextir af bókinni færu í sjóðinn Yrkja og geta grunnskólar landsins sótt um að fá plöntur, sem og Jón Arnar gerði fyrir hönd Grunnskóla Dalvíkurbyggðar.
Krakkarnir okkar skemmtu sér konunglega við gróðursetninguna og best er að láta myndirnar tala sínu máli.
Furðufataleikur (5.okt. 2009)
Hér má sjá krakkana í 3. MA í skemmtilegum furðufataleik.
Skólavinir (5.okt. 2009)
Skólavinaverkefnið gengur vel. Nemendur í 7. bekk hafa staðið sig vel í hlutverki þeirra sem skólavinir.
Hlutverk skólavina er að hafa eftirlit með yngri nemendum skólans. Sýna þeim virðingu og vináttu og auka samskipti yngri og eldri nemenda. Skólavinir aðstoða yngri nemendur í forstofum og eru í vestum úti í frímínútum. Sjá myndir
Göngudagur í 1. bekk ( 17.sept. 2009)
Á göngudaginn var ákveðið að bjóða elstu krökkunum á Kátakoti með fyrsta bekk í gönguna.Við komum því við á Kátakoti og fengum aðeins að prófa leiktækin þar áður en við lögðum af stað. Síðan gengum við sem leið lá upp að Selatóftum á Ufsadal, alls 42 krakkar og nokkrir fullorðnir, meðal annars nokkrir aðstoðarmenn úr eldri bekkjum. Gangan gekk ótrúlega vel, þetta eru allt dugnaðarkrakkar. Þegar heim var komið fengu allir pylsur heima við skóla, líka gestirnir okkar. Foreldrunum og öðrum sem skelltu sér með okkur er þakkað kærlega fyrir aðstoðina.
Myndirnar tala sínu máli!
Starfsdagur
Samkvæmt skóladagatali Grunnskóla Dalvíkurbyggðar er skipulagsdagur starfsfólks föstudaginn 25. sept. Nemendur eru því ekki í skólanum. Skólavistunin verður opinn þann dag frá 13:35
Fundur um Byrjendalæsi
Byrjendalæsi er kennsluaðferð ætluð nemendum í 1.-3. bekk . Meginmarkmið Byrjendalæsis er að börn nái góðum árangri í læsi sem allra fyrst á skólagöngu sinni.
Fimmtudaginn 24. september kl.17:15 í Grunnskóla Dalvíkurbyggðar verður kynning fyrir forldra barna í 1.-3. bekk.
Rannsóknir sýna að þátttaka foreldra í lestrarnámi barna þeirra, hefur áhrif á árangur þeirra.
Hlökkum til að hitta ykkur,
Kveðja , Maggý og umsjónarkennarar
Göngudagur í 7.bekk (15.sept.2009)
Á göngudaginn fórum við í 7. bekk til Hríseyjar. Við byrjuðum á því að kíkja á Hákarlasafnið þar sem Ásgeir tók vel á móti okkur og leiddi okkur í gegn um safnið. Eftir skemmtilega og fróðlega heimsókn á safnið fórum við af stað í gönguna og gengum við merkta gönguleið sem lá í hring um eyjuna. Á göngunni rákum við augun í hvali sem léku á alls oddi úti á hafi og fannst krökkunum ekkert leiðinlegt að fylgjast með þeim. Allir skemmtu sér vel og var þetta í yndislegur dagur í alla staði. Með okkur í gönguna komu tvær mæður og vil ég þakka þeim kærlega fyrir daginn. Myndir hér.
Kransagerð (15. sept.2009)
8.bekkur fór upp í Gróðrareit og lærði að gera kransa með dyggri hjálp Jóns Arnars garðyrkjustjóra. Margir fallegir kransar litu dagsins ljós en auðvitað lék þetta misjafnlega vel í höndunum á fólki. Sjá myndir
Göngudagur 9. sept.
3.MA
Í gær miðvikudag, fórum við í 3. MA í gönguferð upp að Brunnklukkutjörn. Áttum við mjög góðan dag í enn betra verði.
Allir sýndu sínar bestu hliðar og gekk dagurinn vel. Þegar við komum að tjörninni settumst við í grasið og fengum okkur að borða. Krakkarnir voru fljótir að torga nestinu því tjörnin beið og ætluðu krakkarnir að reyna að veiða nokkrar brunnklukkur og vatnsketti. Allir komust þurrir og heilir frá veiðiskapnum.
Leiðin heim gekk vel og þegar við mættum í skólann beið okkar pylsupartý og enn meiri útivera í góða veðrinu. Viljum við þakka þeim foreldrum sem voru svo elskulegir að koma með.
Myndir frá Göngudegi
Myndir frá 5. bekk
Myndir frá 6.bekk
Myndir - Vikið
Myndir frá 7.bekk
Fréttir af 1.bekk (8.sept 2009)
Skólastarfið í 1. bekk fer vel af stað. Í síðustu viku vorum við mikið úti við, fórum upp á Stórhól og tíndum þar blóm og aðrar jurtir sem við þurrkuðum og plöstuðum og ætlum síðan að vinna meira með. Í útikennslutímanum á fimmtudag fórum við síðan upp í skógarreit og gáðum hvort við fyndum eitthvað sem minnti okkur á haustið. tímarnir í verkgreinum gengu vel fyrir sig, svo prófuðu þau bæði mál- og hreyfiþjálfun hjá Valdísi og valið á föstudaginn var.
Við erum búin að taka fullt af myndum af krökkunum sem þið getið séð hér.
Myndir frá fyrsta skóladegi
Þróunarstarf í Grunnskóla Dalvíkurbyggðar.
Grunnskóli Dalvíkurbyggðar er skóli sem lærir stöðugt og leitar leiða til betri og skilvirkari skólastarfs.
Í vetur tekur skólinn þátt í tveimur þróunarverkefnum og hafa kennarar og stuðningsfulltrúar setið á námskeiðum varðandi þau.
Byrjendalæsi er þróunarverkefni fyrir 1.-3. bekk . Markmið þess er að þróa vinnubrögð í lestrakennslu og ritun með það fyrir augum að auka lestrarfærni nemenda og til að auka fjölbreytni í kennsluaðferðum. Vinnubrögðin kalla á samvinnu nemenda, námsleiki, leikræna tjáningu, listsköpun o.fl. Háskólinn á Akureyri veitir kennurum ráðgjöf. Fjölbreytt námsmat er annað þróunarverkefni sem beinist að þróun námsmatsaðferða skólans. Markmiðið er að skipuleggja og þróa einstaklingsmiðað námsmat þar sem byggt verður á fjölbreyttum aðferðum. Ráðgjöf kemur frá Ingvari Sigurgeirsyni prófessor við Menntasvið Háskóla Íslands.
Skólaslit (15.júní 2009)
Skólaslit Dalvíkurskóla voru 4. júní síðastliðinn.
Hér koma nokkrar frá slitunum.
Óskum nemendum að þeir hafi það gott í sumar og að við hittumst hress aftur í haust.
Síðasti skóladagur (3. júní 2009)
Á síðasta skóladegi 6. bekkinga var farið í ratleik um allan bæ. Ein stöðin í leiknum var N1 og fengu krakkarnir ís. Á hverri stöð leystu þeir þrautir. Hér finnið þið myndirnar frá þessum degi.
Rusladagur (3. júní 2009)
Rusladagur 6. Bekkjar var föstudaginn 22. Maí og fóru krakkarnir um ytri-bæinn og tíndu rusl. Hér sjáið þið myndir frá þessum degi.
Þemadagar í maí (2.júní 2009)
Dagarnir 26.-29. maí voru þemadagar á yngsta stigi Dalvíkurskóla, en í ár var þemað fuglar og fiskar. Nemendum 1.-6. bekkjar var skipt í átta hópa og var aldursblandað í hópana voru eldri krakkarnir mjög dugleg að aðstoða þau yngri. Útbúnar voru átta stöðvar og var margt bardúsað á stöðvunum. Sjá nánar. Sjá myndir
Hjólahjálmar (2. júní 2009)
Í síðustu viku komu Lionsmenn þeir Sigurjón og Þórólfur ásamt Felix löggu færandi hendi og afhentu börnunum í 1. bekk nýja hjólahjálma. Öll börn í 1. bekk á landinu fá afhenta hjálma sem er auðvitað frábært. Börnin eru sjálfsögðu glöð með nýju hjálmana sína og við færum Lionsmönnum bestu þakkir fyrir. Sjá myndir.
Íþróttadagur (2.júní 2009)Í dag fór fram íþróttadagur á eldra stigi. Nemendur í 7., 8. og 9. bekk öttu þá kappi í hinum ýmsu greinum.
Einstök úrslit má sjá með því að smella hér.
Lasertag (29.maí 2009)
Veðurblíðan hefur leikið við 7. bekkinga alla þessa viku. Við lukum mikilli útivistarviku í dag með því að fara í Laser-tag í Brúarhvammsreit við Þorvaldsdalsá. Mikil spenna og orka leystist úr læðingi þegar nemendur klæddust herklæðum og munduðu ljósælandi hríðskotabyssurnar. Þetta var til gamans gert en þó var það einn nemandi sem sigraði leikinn, Skúli Lórenz. Takk kærlega þið foreldrar sem keyrðuð til og frá. Skoðið myndirnar hér.
Heimsókn að Sökku (28.maí 2009)
7. bekkur tók sig til og hjólaði fram að Sökku í hæglátu veðri í morgun. Þar fengum við að kynnast lífi og starfi bóndans hjá ábúendunum þar. Sumir mjólkuðu kýrnar og dreyptu á beint af kúnni og nutu vel. Eftir frábæra heimsókn að Sökku var farið niður í Hánefsstaðarreit, borðað og leikið sér. Góður dagur að baki.
Takk fyrir okkur Gunnsteinn, Dagbjört og Olga. Sjá myndir.
Unicef (27.maí 2009)
Mánudaginn 25. maí fór yngri deild Dalvíkurskóla í áheitahlaup til styrktar UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Áður höfðu krakkarnir fengið kynningu á starfi UNICEF og hvernig peningum sem þau myndu safna yrði hugsanlega varið. Þau fengu áheitaumslög sem þau fóru með heim og fengu ættingja til að heita á sig ákveðinni upphæð fyrir hvern hring sem þau gætu hlaupið á einni klukkustund, á grasvellinum. Krakkarnir voru öll mjög dugleg að hlaupa og má geta þess að þeir sem lengst hlupu fóru 24 hringi á klukkutímanum! Ein stúlka þarf að notast við hækjur þessa dagana vegna fótbrots og samt sem áður fór hún 10 hringi.
Nú er að vera dugleg að innheimta áheitin og koma til skila í skólann, til umsjónarkennara eða ritara, á skrifstofutíma.
Það verður spennandi að sjá hve miklum peningum krakkarnir safna, en það er ljóst að það verður umtalsverð upphæð.
Myndir frá hlaupinu má sjá hér.
Sjóstöng (26.maí 2009)
7. bekkur fór í sjóstöng með Garðari á Níelsi Jónssyni EA. Mikil veiði og veðurblíða en þó var töluverður veltingur. Urðu því þó nokkrir sjóveikir og skiluðu morgunverðinum í sjóinn. Skoðið myndirnar hér.
Friðland í fóstur (25.maí 2009)
Í morgun var athöfn í Dalvíkurskóla þar sem Svanfríður Inga Jónasdóttir bæjarstjóri og Gísli Bjarnason skólastjóri skrifuðuundir samkomulag þess efnis að nemendur og starfsfólk Grunnskóla Dalvíkurbyggðar taki Friðland Svarfdæla „í fóstur“. Er samkomulagið liðurumhverfisstefnu skólans og grænfánamarkmiðum hans. Samkomulagið felur í sér að nemendur og starfsfólk Grunnskóla Dalvíkurbyggðar sjá um:eftirlit og viðhaldá gönguleiðum, stikum, skiltum og mannvirkjum í friðlandinu.Hreinsun og ruslatínslu hvar sem hennar er þörf innan friðlandsins.Áherslu á umhverfisfræðslu í starfsemi skólans með sérstakri athygli á Friðland Svarfdæla. Dalvíkurbyggð leggur á móti til efni, verkfæri og aðstöðu til verksins.
Góðir gestir hjá 2.EÞ (25.maí 2009)
Síðastliðinn föstudag fengum við í 2.EÞ góða gesti í heimsókn til okkar. Það voru nemendur og kennarar 1. og 2. bekkjar í Árskógarskóla en við sjálf heimsóttum þau einmitt í apríl. Við byrjuðum á því að leika okkur saman á ýmsum valstöðvum í stofunni okkar þar sem við gátum meðal annars púslað, kubbað, spilað, farið í bíló og leikið með dýr. Síðan gæddum við okkur á mjólk og ljúffengu bakkelsi sem nokkrir foreldrar voru svo góðir að baka handa okkur. Að lokum fórum við út í góða veðrið og lékum okkur saman í leiktækjunum á skólalóðinni og krítuðum. Það var afskaplega skemmtilegt að fá krakkana úr Árskógarskóla í heimsókn til okkar og þökkum við þeim kærlega fyrir komuna. Hér má sjá myndir.
Vorhátið (22.maí 2009)
Vorhátíðin í gær heppnaðist vel og viljum við þakka þeim fjölmörgu sem lögðu leið sína í skólann til að kíkja á vinnu nemenda.
eru nokkrar myndir frá deginum.
Tónlistardagur (12. maí 2009)
Tónlistardagur á eldra stigi heppnaðist vel. Nemendum 7.-10. bekkjar var skipt í hópa sem fóru á milli fimm ólíkra stöðva. Nemendur fengu að spreyta sig á að vera í hlómsveit og sá Matti Matt. um að þjálfa krakkana í að spila og syngja Wild Thing, Magni rokkstjarna lét alla æfa lagið Traustur vinur. Hjöri aðstoðaði við hljóðfæragerð og Elmar vann með dægurlagatexta. Á síðustu stöðinni fengu krakkarnir að skoða tónlistarmyndbönd. Í lok dagsins var síðan boðið upp á tónleika á sal skólans þar sem þeir unglingar sem eru í tónlistaskólanum spiluðu. Sjá myndir.
Hugsað um börn (12.maí 2009)
Nemendur 10. bekkjar fengu það skemmtilega hlutverk að hugsa um börn í tvo og hálfan sólarhring í síðustu viku. Þetta er forvarnarverkefni sem ÓB-ráðgjöf bíður upp á og hefur verið ímörgum grunnskólum landsins undanfarin ár. Áður en nemendur fengu sitt barn þurftu nemendur að hlýða á kynningu á verkefninu og fyrirlestur um forvarnir. Verkefnið heppnaðist mjög vel og nemendur fengu nasasjón af því hvernig það er að vera foreldrar og ábyrgðinni sem því fylgir. Myndir koma síðar.
SÞ í vinnustaðarheimsóknum (8.maí 2009)
Krakkarnir í 1. bekk fóru og hittu Svanfríði bæjarstjóra og heimsóttu frystihúsið.Þessi heimsókn var hluti af þemavinnunni okkar um heimabyggðina. Veðrið lék nú ekki beint við okkur þegar við lögðum af stað í ráðhúsið, hagl og slydda og allt á móti.
Það voru því blaut börn sem mættu til bæjastjóra.
En við gefum börnunum orðið:
Við fórum að heimsækja bæjasrstjórann sem vinnu í Ráðhúsinu.
Við fórum með lyftu upp og spjölluðum saman um vinnuna hennar. Svo fengum að spyrja hana nokkurra spurninga. Svanfríður var skemmtileg. Síðan fórum við í frystihúsið , Þar tók Siggi á móti okkur og leyfði okkur skoða allt sem gert er þar við fiskinn.
Margir krakkar í bekknum hittu mömmu sínar eða einhverja sem þau þekkja. Við fengum að vita að togarnir t.d Björgúlfur og Björgvin veiða fisk fyrir frystihúsið . Mest er verið að vinna með þorsk. Þegar búið er að vinna fiskinn fer hann til útlanda.
Við sungum líka bæði fyrir Svanfríði og Sigga vorvísur í vonda veðrinu. Þegar við komum í skólann fengum við glaðning, smá nammi frá Svanfríði. Þetta var frábær dagur. Takk fyrir okkur Svanfríður og Siggi.
Krakkarnir 1.SÞ. Sjá myndir
Myndasafn verkgreinar (8.maí 2009)Komið er nýtt myndasafn frá verkgreinum. Þar eru myndir af leirverkum sem nemendur hafa unnið. Nemendur 5 LB og ME unnu með reikistjörnurnar í vetur. Í myndmennt hönnuðu þau sitt eigið geimskip til ferðalaga til fjarlægra stjörnukerfa. Hér eru einnig nokkrar myndir að tjaldabaki frá undirbúningi árshátíðar Dalvíkurskóla. Svo hefur fyrsti bekkur hefur verið að kljást við hið klassíska verkefni “Uppstillingin” í myndmennt. Nokkrar myndir eru af teikningum, málverkum og vinnu þeirra.
Sundskálaferð hjá 2. EÞ (8.maí 2009)
Í vikunni fórum við í 2.EÞ í sundskálann ásamt foreldrum okkar en foreldrar í vorannarhóp skipulögðu þessa skemmtilegu uppákomu. Við skemmtum okkur við að synda og busla í lauginni og lékum okkur að öllum sniðugu hlutunum og áhöldunum sem eru til í sundskálanum. Nokkur okkar dunduðu sér líka við að reyna að kaffæra foreldrunum! Eftir sundið var svo boðið upp á grillaðar pylsur og djús og tóku allir hraustlega til matar síns. Sumir borðuðu meira að segja 5 pylsur! Við þökkum foreldrunum sem sáu um sundskálaferðina kærlega fyrir góða skemmtun. Sjá myndir
Flokkun í 4.GSÓ (6. maí 2009)
Frá því í október hafa nemendur 4. bekkjar flokkað allt rusl sem til fellur í stofunni. Lífrænn úrgangur og óflokkað sorp hefur farið í ruslagám skólans, en pappír, plast, málmur og fernur fer í geymsluna okkar þar til hún fyllist. Þá fáum við bæjarstarfsmenn til að opna fyrir okkur á gámasvæðinu og notum útikennslutímann okkar til að losa okkur við ruslið í þartilgerða gáma. Í morgun var tímabært að losa rusl og fórum við síðan aðeins niður á sand áður en haldið var heim á leið. Krakkarnir fundu nokkra dauða fugla, meðal annars einn skarf! Voru þeir allir jarðaðir með viðhöfn og þeim reistur minnisvarði. Þetta var skemmtileg ferð, myndir hér!
Starfskynningar Í 2.EÞ (6.maí 2009)
Í tengslum við þemað okkar um fjöruna og hafið voru tveir pabbar í bekknum með fróðlegar og áhugaverðar starfskynningar fyrir okkur. Gummi, pabbi Mjalldísar Óskar, kom í skólann og sagði okkur frá starfi sínu sem netamaður á frystitogaranum Brimnesi. Gummi sýndi okkur meðal annars myndir af skipinu og alls kyns furðulegum fiskum og svaraði spurningum sem brunnu á vörum nemenda. Dóri, pabbi Helga, bauð okkur svo að koma um borð í skuttogarann Björgúlf en þar er hann vélstjóri. Dóri leiddi okkur um mest allt skipið, sýndi okkur alls kyns áhugaverða hluti sem þar er að finna og sagði frá starfi sínu og annarra um borð. Báðar þessar starfskynningar voru mjög vel heppnaðar og fá Gummi og Dóri okkar allra bestu þakkir fyrir að hafa gefið sér tíma til að fræða okkur um sjómannslífið.
EÞ í sumardagsgöngu (24.apríl 2009)
Í vikunni fengum við í 2.EÞ góða gjöf því Bandalag íslenskra skáta gaf öllum 2. bekkingum á landinu íslenska fánann í tilefni sumardagsins fyrsta. Við ákváðum að sjálfsögðu að skella okkur í skrúðgöngu með fánana og fagna komu sumarsins. Við létum það ekkert á okkur fá þó það mígrigndi á okkur allan tímann, heldur sungum hástöfum lagið Sól, sól skín á mig á meðan við gengum milli nokkurra fyrirtækja. Í fyrirtækjunum fengum við svo að syngja inn sumarið með nokkrum fallegum vor- og sumarlögum og fengum góðar þakkir fyrir. Hér eru myndir.
EÞ í fjöruferð (22.apríl 2009)
Við í 2.EÞ erum nýbyrjuð á þemaverkefni um fjöruna og hafið og því fórum við í fjöruferð austur á sand einn góðviðrisdag í vikunni. Markmið ferðarinnar var að rannsaka hvað megi finna í fjöru og safna sýnishornum. Óhætt er að segja að lánið hafi leikið við okkur “rannsóknarmennina” því við fundum meðal annars endur, skeljar, steina, krabba, rekavið, gæsa- og andaspor, plastrusl, reipi, fjaðrir, segldúk, dauða fugla, krabbafætur, þara, hrúðurkarla og brot af ísjaka. Hér eru myndir.
Fjöruferð (21.apríl 2009)
Síðastliðinn þriðjudag fór fjórði bekkur niður í litlu fjöruna við flotbryggjuna. Erindið var að kanna hvort við sæjum eitthvað í fjörunni sem ekki tilheyrði náttúrunni, einnig var svolítið brauð meðferðis ef við myndum sjá einhverja æðarfugla.
Skemmst er frá því að segja, að á þessum litla bletti sem við skoðuðum fannst ótrúlega mikið magn af alls kyns hlutum sem voru utanaðkomandi, s.s. plastpokar, flöskur undan smurolíu, kókglös, reipi o.fl. Þetta var allt tínt saman og varð úr vænn haugur.
Æðarfuglinn lét ekki bíða eftir sér, ótrúlegt magn fugla er enn í höfninni þrátt fyrir sprengingar og rask vegna byggingar ferjubryggju. Áður en við fórum heim kíktum við á framkvæmdirnar.
Veðrið var yndislegt, sólskin og logn, eins og myndirnar bera með sér.
Heimsókn í Árskógarskóla (17.apríl 2009)
Við í 2.EÞ vorum svo heppin að fá að heimsækja krakkana í 1. og 2. bekk í Árskógarskóla. Við byrjuðum á því að leika okkur saman í alls kyns skemmtilegum leikjum í íþróttasalnum þeirra og svo sýndu krakkarnir okkur bekkjarstofuna sína og aðra hluta skólans. Við myndum sko ekki komast öll fyrir í stofunni þeirra því hún er helmingi minni en okkar bekkjarstofa! Krakkarnir buðu síðan upp á ískalda mjólk og muffins og skúffuköku sem þeir bökuðu sérstaklega fyrir heimsókn okkar og að lokum lékum við okkur öll saman í leiktækjunum á skólalóðinni þeirra. Það var mikið fjör! Við færum kennurum og nemendum Árskógarskóla okkar bestu þakkir fyrir góðar móttökur og alla skemmtunina. Við hlökkum til að endurgjalda greiðann og fá þau í heimsókn til okkar í maí. Eins fá bílstjórarnir úr foreldrahópnum kærar þakkir fyrir skutlið. Sjá myndir.
Íþróttadagur (3. apríl 2009)
Nemendur 5. 7. bekkjar héldu til í íþróttahúsinu í dag. Þar öttu nemendur kappi í knattspyrnu, handbolta og dodgeball. Það er óhætt að segja að allir hafi lagt sig fram eins og þeir gátu og var kappið eftir því mikið. Flestir skemmtu sér vel og sýndu íþróttamannslega framkomu. Að lokinni keppni lögðu nemendur til eftir sig á pöllum, klefum og í sal. Nú er páskafríið hafið og óskum við ykkur gleði og vina páska. Sjá myndir.
Undirbúningur (3. apríl 2009)Endilega kíkið á meðfylgjandi myndir frá árshátíðarundirbúningi hjá 6. EA og 6. MA.
Árshátíð (3. apríl 2009)
Árshátíð Dalvíkurskóla var haldin 1.og 2. apríl. Undanfarnar vikur hafa nemendur æft mikið og vel undir stjórn kennara. Árshátíðin heppnaðist mjög vel og nemendur okkar stóðu sig frábærlega. Kærar þakkir til nemenda og allra þeirra sem tóku þátt í að gera þessa hátíð sem besta. Sjá myndir hér.
Forsetaheimsókn (27.mars 2009)
Forseti Íslands, Herra Ólafur Ragnar Grímsson, heimsótti Dalvíkurskóla í gær, fimmtudag. Nemendur tóku á móti forsetanum í andyri skólans og 4. bekkur söng tvö lög. Ólafur ávarpaði nemendur og starfsfólk og svaraði síðan nokkrum spurningum nemenda áður en hann gekk um skólann og leit inn í nokkra bekki. Heimsóknin heppnaðist mjög vel og Ólafur hafði orð á því að skólinn væri bjartur, að hér ríkti vinalegt andrúmsloft og börnin væru prúð og frjálsleg. Hér eru myndir.
Fréttapistill úr 4. bekk (26.mars 2009)
Það er mikið að gerast í 4. bekk þessa dagana. Í síðustu viku fylltist óskasteinakrukkan og því var stormað upp í fjall þar sem foreldrar biðu með þvílíku veisluna handa okkur; skúffuköku, pönnukökur, muffins, brauðbollu o.fl., ásamt djús að drekka. Fór Oddný mamma Daða þar fremst í flokki og þökkum við henni kærlega fyrir alla aðstoð, eins fær starfsfólk Brekkusels kærar þakkir fyrir góða þjónustulund. Eftir nestið fóru allir á skíði og/eða bretti og skemmtu sér vel fram að hádeginu. Veðrið var frábært og allt í plús.
Á þriðjudaginn var fórum við upp í gróðrareit til að leita að vorinu og fundust ýmsar vísbendingar. Við sáum tvo svani fljúga yfir, fundum grænt gras, könguló og brum á trjám og runnum, þannig að vorið er á næsta leyti.
Á miðvikudaginn fórum við í Mímisbrunn til að spila við vini okkar þar, allir spiluðu vist og heilmikið bættist við orðaforðann, s.s. tromp, bekenna, renus og fleira tengt spilum.
En látum myndirnar tala sínu máli: Vorleit Mímisbrunnur Skíði
Handboltakynning (23.mars 2009)
Föstudaginn 20. mars komu hanboltakapparnir Sigfús Sigurðsson og Jónatan Magnússon og kynntu nemendum í 3.-6. bekk handbolta í íþróttahúsinu. Þetta var frábær stund og krakkarnir voru mjög áhugasöm. Sjá myndir
Frábær skíðadagur (20.mars 2009)
5. bekkur gerði sér dagamunog eyddi fimmtudeginum á skíðum. Allir fóru á skíði eða bretti, nokkrir voru að stíga sín fyrstu skref í þessari íþrótt og tókst það með eindæmum vel. Allir voru sælir og endurnærðir eftir þennan skemmtilega dag. Við viljum þakka Skíðafélaginu kærlega fyrir og þá sérstaklega Einari Hjörleifssyni sem var mjög hjálpsamur og jákvæður fyrir að fá um 30 káta krakka í fjallið til sín. Hér eru myndir frá deginum.
Trúarbragðaþema (20.mars 2009)
Dagana 11. – 17. mars var trúarbragðaþema í 1. – 4. bekk. Þá lærðu krakkarnir um fimm af algengustu trúarbrögðum heimsins. Kennt var á fimm stöðvum og var ein trú tekin fyrir á hverjum stað og unnið með hana einn morgun. Kennt var um hindúatrú, islam gyðingatrú, búddatrú og kristna trú. Krakkarnir unnu í aldursblönduðum hópum og var frábært að sjá hvað það gekk vel og hvað þau eldri voru dugleg að hjálpa þeim yngri ef á þurfti að halda. Allir hóparnir fóru í öll trúarbrögðin og unnu fjölbreytt verkefni tengt hverju og einu. Að lokinni þemavinnunni var svo opið hús í skólanum fimmtudaginn 19. mars og var foreldrum og öðrum aðstandendum boðið að koma og skoða afraksturinn af þessari vinnu. Það var ánægjulegt að sjá hvað margir sáu sér fært að mæta enda skiptir það börnin miklu máli að sjá áhuga foreldra. Með svona vinnu teljum við okkur vera að vinna á móti fordómum og auka víðsýni nemenda. Þessi vinna féll líka vel að þema marsmánaðar í Dalvíkurskóla sem er fjölmenning. Sjá myndir.
Stóra upplestrarkeppnin
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar verður í Ólafsfjarðarkirkju 5. mars næstkomandi og hefst hún klukkan 14:00. Foreldrar og aðstandendur eru hvattir til að mæta og hlýða á frábæra upplesara.
Öryggi barna og unglinga á netinu.
Fyrirlestur um örugga netnotkun barna og unglina í boði foreldrafélagsins 24.febrúar kl. 18:00.Nánari upplýsingar hér
Frábær útivistardagur í Böggvistaðarfjalli.
Í síðustu viku áttu nemendur og starfsfólk Dalvíkurskóla frábæran dag saman í fjallinu.
Veðrið lék við okkur, bjart og fallegt og nemendur nutu þess að vera saman í leik og gleði.
Kennarar gengu með 1.-6. bekk frá skólanum að Brekkuseli og heitt kakó beið þeirra.
Nemendur voru til fyrirmyndar og eiga hrós skilið fyrir góðan dag.
Samverrustundir sem þessar eru nemendum nauðsynlegar. Þær stuðla að bættum félagslegum þroska og efla heilsu og líðan barna.
Kveðja frá starfsfólki Dalvíkurskóla.
Opinn skóli í Dalvíkurskóla
Miðvikudaginn 18. febrúar, frá kl. 16:30 til 18:30, eru nemendur boðnir velkomnir í skólann ásamt foreldrum sínum, afa eða ömmu. Hægt verður að spila, tefla, fara í borðtennis eða kíkja á bókasafnið.
Skólastjórnendur
Á skíðum skemmti ég mér
Á morgun, föstudag 13. feb. ætlum við í 1.-6.bekk að skemmta okkur saman á skíðum, þotum eða sleðum í fjallinu, (dekkjaslöngur ekki leyfðar). Nemendur mæta í skólann kl. 8, en engin þörf á skólatöskunni, eða íþróttafötum. Nánar hér
Útivistardagur eldra stigs.
Í dag 12. febrúar er eldra stigið með útivistardag.
Sýningarplan LeiklistarhópsLeiklistarhópur unglingadeildar Dalvíkurskóla hefur verið að æfa leikverkið "Fólk á förnum vegi" Hér má sjá sýningarplanið.
Undirskrift í Ólafsfirði (20.mars 2009)
Síðastliðinn mánudag eða þann 16. mars, bauðst okkur í 10.SK að vera viðstödd merkilega undirskrift í Ólafsfirði. En þar mætti menntamálaráðherra hún Katrín Jakobsdóttir og var að skrifa undir viljayfirlýsingu um það að hér muni rísa framhaldsskóli við utanverðan Eyjafjörð. Merkilegur áfangi það. Þessi undirskrift fór fram í Tjarnarborg og var boðið upp á kók, kleinur og fleira góðgæti. Þegar að undirskrift var lokið var öllum síðan boðið uppá pizzu, félagsmiðstöðin skoðuð og endað var í sundi.
Þetta var skemmtileg og óvænt ferð. Þið getið séð myndir af þessu hér.
Fjallið okkar (20.mars 2009)
Síðastliðinn miðvikudag eða þann 18. mars fórum við í 10.SK í fjallið okkar góða. Það er svosum ekki mikið hægt að segja um það annað en að þetta var frábær ferð og ég vona svo sannarlega að allir hafi skemmt sér vel. Nokkrir stigu á skíði í svo að segja fyrsta skipti sem er dásamlegt og stóðu sig með prýði, hinir reyndu kenndu þeim óreyndu og það var dásamlegt að fylgjast með þeim öllum, hefði bara gjarnan viljað renna mér nokkrar bunur, en það kemur seinna.
Hér sjáið þið myndir af skemmtilegri ferð.
Félgsvist í Mímisbrunni (20.mars 2009)
Þriðjudag og miðvikudag fóru 5. og 6. bekkur í Mímisbrunn að spila félagsvist við nokkra úr Félagi eldriborgara. Höfðu allir mjög gaman að þessu, líka þeir sem voru að læra spilið. Gaman væri að krakkarnir næðu að viðhalda þessari kunnáttu þannig að verið endilega dugleg að grípa í spil við þau. að vita nema við spilum félagsvist í skólanum þar sem þetta er góð þjálfun í rökhugsun.
Því miður gleymdist myndavélin svo engar eru myndirnar til að sýna ykkur. Við þökkum þessum ágætu eldriborgurum kærlega fyrir okkur.
Kveðja umsjónarkennarar 5. og 6. bekkjar
Kveðjupartý í 2.EÞ (16.mars 2009)
Síðastliðinn föstudag var heljarinnar kveðjupartý hjá okkur í 2.EÞ vegna þess að Tóta stuðningsfulltrúinn okkar er að hætta. Við spiluðum, teiknuðum, lékum okkar að alls kyns dóti og hámuðum í okkur snakk sem Tóta var svo góð að bjóða upp á. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum skemmtum við okkur afbragðs vel. Við þökkum Tótu fyrir samfylgdina og óskum henni velfarnaðar í nýju starfi.
Skólahreysti (13.mars 2009)
Dalvíkurskóli tók þátt í 7. riðli í Skólahreysti fimmtudaginn 12. mars. Keppendur okkar voru þau: Jón Bjarni sem keppti í upphífingum og dýfum; Anna Kristín sem keppti í armbeyjum og hreystigreip og að lokum kepptu Bryndís Lilja og Jón Bjarki í hraðabraut. Anna Kristín náði bestum árangri og vann hreystigreip. Eins og sést á úrslitunum vorum við mjög nærri því að lenda í 3. sæti. Frábær árangur. Myndir frá keppninu koma fljótlega.
Úrslit úr Skólahreysti.
Grunnskóli Siglufjarðar 63,00
Borgarhólsskóli 48,00
Grunnskólinn á Blönduósi 40,00
Varmahlíðarskóli 40,00
Grunnskólinn í Ólafsfirði 40,00
Dalvíkurskóli 39,00
Húnavallaskóli 34,00
Grunnskólinn Hofsósi 29,00
Reykjahlíðarskóli28,00
Árskóli 19,00
Grenivíkurskóli 16,00
Vel lukkaður skíðadagur (12.mars 2009)
Í gær, miðvikudag 11. Mars, fórum við í 6. Bekk á skíði í boði skíðafélagsins. Þessi dagur gekk út á að skíða eða vera á bretti og þeir sem áttu ekki skíkan búnað fengu hann lánaðan sér að kostnaðarlausu. Gaman var að sjá hvað vönu skíðakrakkarnir voru duglegir í að hjálpa þeim sem voru að renna sér í fyrsta skipti. Í lok dags voru allir orðnir vel skíðandi og skemmtu sér konunglega. Gott framtak að hálfu skíðafélagsins. Takk kærlega fyrir okkur. Endilega kíkið á meðfylgjandi myndir. Kveðja 6. EA og 6. MA
Tónlistardagur (10.mars 2009)
Þriðjudaginn 10. mars var tónlistardagur í 1.-6. bekk, yngri deild Dalvíkurskóla. Dagurinn var skipulagður í góðu samstarfi kennara Tónlistarskólans og Dalvíkurskóla. Hálfan morguninn voru börnin í Tónlistarskólanum, þar sem tónlistarkennararnir kynntu sín hljóðfæri; Zsuzsanna kynnti fiðluna, Helga Bryndís píanóið, Hjálmar málmblásturshljóðfærin, Valdi gítarinn og Ave harmonikkuna. Nutu þau fulltingis nemenda sinna sem spiluðu á hljóðfærin og aðstoðuðu þannig við kynninguna. Hinn hluta morguns voru nemendur uppi í skóla, þar sem boðið var upp á fjórar smiðjur; Matti Matt söng með krökkunum, Hjöri bauð uppá hljóðfæragerð, Þóra kenndi þjóðdansa og einn gestakennari, Ármann Einarsson frá Tónlistarskóla Akureyrar sá um skemmtilega vinnu með rythma, þar sem nemendur slógu taktinn á líkama sínum og lærðu nokkur dansspor. Skapandi starf er mikilvægur þáttur í leik og starfi skólabarnanna. Tónlistarsköpun, tjáning og dans eflir skapandi hugsun, þjálfar einbeitingu og félagsþroska. Rannsóknir hafa sýnt að tónlist hefur góð áhrif á líðan okkar og þroska. Með því að skipuleggja dag eins og tónlistardaginn viljum við mynda jákvætt viðhorf til tónlistarinnar og minna á að tónlistin á erindi við okkur öll! Sjá myndir.
Kærar þakkir fyrir frábæran dag!
Kennarar Dalvíkurskóla og Tónlistarskóla Dalvíkur.
Skringilegar verur í 2.EÞ (8.mars 2009)
Á föstudaginn var furðufatadagur hjá yngri deild skólans og af því tilefni mættu nemendur og kennarar í alls kyns grímubúningum og furðufötum í skólann. Þennan dag mátti sjá ýmsar skringilegar verur í bekknum okkar því þar voru meðal annars norn, fótboltakappar, smábörn, gömul kona, grasker og álfkona. Hér eru myndir.
Furðufatadagur (7.mars 20099
Nemendur í 1.-6. bekk mættu í salinn í byrjun skóladags á föstudaginn ásamt kennurunum.
Þar mátti sjá margar furðuverur, nornir, smábörn, pönkara, grasker, o.fl.
Marseruðu þessar furðuverum um skólann, eldri nemendur aðstoðuðu þau yngri og á eftir því var farið í ásadans og að lokum farið í ýmsa dansleiki undir stjórn Þóru og Guðnýjar..
Allir skemmtu sér vel og gekk þessi stund mjög vel, þrátt fyrir allan fjöldann. Krakkarnir eiga enn og aftur hrós skilið. Sjá myndir,
Stóra Upplestrarkeppnin (6.mars 2009)
Það var svo sannarlega ferð til fjár þegar 7. bekkingar héldu til Ólafsfjarðar að keppa í Stóru upplestrarkeppninnni fimmtudaginn 5. mars. Fjórir fulltrúar skólans öttu þar kappi við fjóra aðra nemendur úr grunnskólum í nærliggjandi byggðum. Hátíðleg og skemmtileg keppni þar sem áheyrendur voru skólanum sínum til sóma. Sigurvegararnir komu allir úr Dalvíkurskóla sem ber að fagna. Þriðja sætið hlaut Jóhann Ólafur Sveinbjarnarson, í öðru sæti varð Lilja Gestsdóttir og sigurvegari lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar 2009 er Ásdís Dögg Guðmundsdóttir. Glæsilega að verki staðið. Til hamingju öll sömul.
eru nokkrar myndir.
Skólaskipið (5.mars 2009)
9. bekkur fór í siglingu með skólaskipinu Dröfn í gær. Þetta hefur verið árlegur viðburður og hefur mælst mjög vel fyrir. Hér eru nokkrar myndir af "sjóurunum".
Friðarheimsókn (5.mars 2009)
Í morgun fór 3. GA í heimsókn í Electro og á Hárverkstæðið. Þau Palli og Auður voru búin að bjóða okkur að koma í fyrirtækjaheimsókn og við ákváðum að slá tvær flugur í einu höggi og fara til þeirra í friðarheimsókn í leiðinni. Þau sögðu krökkunum aðeins um sín störf og krakkarnir spurðu margra spurninga bæði um rafmagnið hjá Palla og um klippingar og litun hjá Auði. Að lokum afhentum við þeim hjörtu með kærleiks- og vináttuorðum og einnig fengu þau friðardúfu frá okkur. Við vorum svo leyst út með frábærri gjöf sem var stórt veggspjald með myndum af öllum nemendum og kennurum bekkjarins. Takk fyrir okkur. Sjá myndir.
Íslandsmeistari (5.mars 2009)
Maciej Szymkowiak nemandi 7. bekkjar gerði frábæra ferð á Meistaramót Íslands, innanhúss, í frjálsum íþróttum í lok febrúar. Maciej er handhafi Íslandsmets í kúluvarpi utanhúss frá síðasta sumir og byrjar því vel á þessu ári. Maciej varð Íslandsmeistari í kúluvarpi þar sem hann kastaði 11,31 m og krækti sér í bronsið í hástökki. Til hamingju Maggi!
Fuglahús (3.mars 2009)
Í haust bjó smíðahópurinn í 3. bekk til fuglahús. Nemendur unnu saman 2- 3 að húsunum og ákváðu sjálf hvernig þau ættu að vera. Afraksturinn varð 3 flott fuglahús sem við erum búin að koma upp hér og þar um bæinn. Við höfum gefið fuglunum mat í húsin og fylgjumst svo með hvort fuglarnir komi og borði hann. En sem komið er virðast þeir ekki vera duglegir að kíkja við en við höldum áfram að freista þeirra með mat. Húsin eru að minnsta kosti glæsileg og ekki slæmt fyrir fuglana að hafa þann möguleika að koma þar við.
Sjá myndir hér.
Frétt frá 7. bekk (25.feb.2009)
7. bekkur fór á skíði í Böggvisstaðafjalli í boði Skíðafélagsins. Þar tóku Einar & Bjöggi Hjöra og Jón Halldórs á móti okkur og lánuðu allar græjur sem þurfti. Þeir sem þurftu fengu kennslu og margir af þessum vönu skíðurum hljálpuðu líka heilmikið til. Hvetjum fólk til að fara eins oft og það getur á skíði og njóta þessa undurs sem við íbúar Dalvíkurbyggðar eigum hér ofan Dalvíkur. Sjá myndir.
Myndir frá konudegi
Friðarboðskapurinn (24.feb.2009)
Eins og áður er fram komið er friðarþema hjá okkur í Dalvíkurskóla í janúar og febrúar og hafa nemendur verið að bera friðarboðskapinn út í fyrirtæki og stofnanir í bænum. Fjórði bekkur fór upp á Krílakot. Þau fluttu þar stutta dagskrá um frið og vináttu og sungu eitt lag, síðan afhentu þau friðardúfu og falleg orð um frið á blaði. Að því loknu sungu allir saman nokkur lög undir stjórn Helgu Bjartar kennara. Krakkarnir máttu síðan dreifa sér um deildir leikskólans og léku þau sér með litlu krökkunum góða stund áður en farið var aftur í skólann. Þessi stund á Krílakoti var afar vel heppnuð, fjórði bekkur var til mikillar fyrirmyndar, aðstoðuðu starfsfólkið og léku við litlu krakkana. Takk fyrir okkur Kríló!
Hér má sjá myndir úr heimsókninni.
Friðarstund (23.feb.2009)
Undanfarnar vikur höfum við í 2.EÞ unnið með frið í lífsleiknitímum. Í dag heimsóttum við svo ráðhúsið og héldum stutta friðarstund fyrir starfsfólk og viðskiptavini þess. Við lásum upp falleg orð um frið og sungum tvö lög. Að lokum gáfum við starfsfólki ráðhússins stóra og fallega friðardúfu sem við höfðum föndrað og skjal með friðarorðum. Þetta var róleg og góð stund og vonandi fundu allir sem hlýddu á okkur fyrir innri frið í hjörtum sínum. Sjá myndir.
Hvalaverkefni (22.feb.2009)
4. bekkur GSÓ hefur verið mjög upptekinn af hvölum og lifnaðarháttum þeirra undanfarnar vikur, en nú er verkefninu lokið. Í dag buðum við foreldrum og öðrum sem koma vildu á kynningu á verkefninu. Að vanda var mjög góð mæting, eða um 50 manns og viljum við þakka gestunum kærlega fyrir komuna, það er virkilega gaman að standa í svona kynningu þegar foreldrar, afar og ömmur sýna svona mikinn áhuga. Baksturshópur foreldra bauð upp á dýrindis meðlæti með kaffinu; snúða, möffins, kleinur og randalín, kærar þakkir fyrir það líka! Krakkarnir stóðu sig afar vel í kynningunni, lásu stuttan fræðitexta um þá hvalategund sem þau höfðu unnið mest með og sungu síðan eitt friðarljóð í lokin.
Hægt er að sjá fleiri myndir frá kynningunni hér.
Upplestrarkeppni (20.feb.2009)
Upplestrarkeppni Dalvíkurskóla var haldin í dag, föstudaginn 20. febrúar. Keppnin heppnaðist frábærlega, enda höfðu umsjónarkennarar þjálfað nemendur sína mjög vel um nokkurt skeið. Fjórir nemendur voru valdir til að taka þátt í lokakeppninni sem haldin verður í mars. Þeir sem komust áfram eru: Ásdís Dögg, Helgi, Jóhann Ólafur og Lilja. Sjá myndir.
Álfakynning í 1.SÞ (19.feb. 2099)
Krakkarnir í 1. bekk hafa verið að vinna söguverkefni um álfa. Þau héldu foreldrakynningu í síðustu viku. Þar kynntu þau álfana sína, álfabyggðir, lásu álfasögur.
og sungu álfalög. Í lok kynningar var boðið upp á kökur sem foreldrar höfðu bakað. Eins og sjá má á myndunum eru sérstaklega fallegir álfar í 1. bekk.
Nemendaráð Dalvíkurskóla
Í skólanum starfar öflugt nemendaráð. Þau Arinbjörn, Heiða, Margrét Jóna, Vaka, Gyða og Melkorka hafa haldið 20 fundi í vetur ásamt Adda Sím, umsjónarmanni félagsstarfsins. Að því tilefni var boðið upp á léttar veitingar á fundinum á meðan næstu atburðir voru ræddir og skipulagðir.
Myndasyrpa úr 3.GA (17.feb.2009)
Í 3. GA tókum við okkur til á dögunum og tókum myndir af börnunum við ýmsa iðju m.a. í nuddhring sem er alltaf hjá okkur á föstudögum. Í spilavali sem var hjá okkur föstudaginn 6.febrúar. Einnig eru hérna nokkrar myndir af útivistadeginum okkar og vinnunni við landnemaverkefnið.
Útivistardagur 2.EÞ (15.feb .2009)
2.EÞ í góðu glensi á útivistardaginn.
Við í 2.EÞ skemmtum okkur frábærlega í fjallinu á útivistardaginn. Veður og færi var eins og best verður á kosið og við renndum okkur ótal ferðir á sleðum, skíðum og brettum. Til að hlaða kroppana okkar orku fyrir allar ferðirnar upp og niður fjallið var svo rosa gott að fá heitt kakó með nestinu og pylsur í hádeginu. Hér eru myndir frá þessum skemmtilega degi.
Tröllakynning í 2.EÞ (13.feb.2009)
Í janúar höfum við í 2.EÞ unnið að stóru þema um tröll. Við höfum meðal annars aflað okkur fróðleiks um tröll, leyst þrautir, lesið sögur um tröll, búið til tröllahella og trölladúkkulísur, leirað nátttröll, skrifað eigin tröllasögur og teiknað tröllamyndir. Við lukum svo þemanu á glæsilegri kynningu sem foreldrar, systkini, ömmur og afar fjölmenntu á. Við þökkum þeim öllum kærlega fyrir komuna og vonum að þau hafi skemmt sér jafn vel og við. Hér eru myndir frá kynningunni sem og nokkrar frá vinnu okkar við þemað.
112 framhald
Eins og fram kemur hér að neðan var 1-1-2 dagurinn í gær.
Smellið hér til að sjá myndir af krökkunum í 6. Bekk.
Við í 2.EÞ skemmtum okkur stórvel á 1-1-2 daginn og hápunkturinn var vafalaust sá að fá að prófa hin og þessi farartæki! Í bekknum okkar eru örugglega nokkrir framtíðarstarfsmenn Lögreglunnar og Slökkviliðsins og Björgunarsveitin og Kvennadeildin mega eiga von á góðum og öflugum liðsstyrk eftir nokkur ár!
Hér eru myndir.
Frábær 1-1-2 dagur á Dalvík
Miðvikudaginn 11. febrúar síðastliðinn var 1-1-2 dagurinn haldinn um allt land og að þessu sinni var sérstaklega hugað að börnum og ungmennum, öryggi þeirra og velferð. Hér á Dalvík héldu Lögregan, Slökkviliðið, Björgunarsveitin, Kvennadeildin, Heilsugæslan og Rauði krossinn upp á daginn með því að bjóða öllum nemendum Dalvíkurskóla í heimsókn í bækistöðvar sínar til að fræðast um starf þeirra. Nemendur flökkuðu á milli fjögurra stöðva og fengu meðal annars að heyra um starfsemina, skoða aðstöðuna, læra rétt viðbrögð við að losa aðskotahlut úr hálsi, kíka inn í fangaklefa og setjast upp í slökkviliðsbíla og á snjósleða. Dagurinn gekk í alla staði vel og var fræðandi, áhugaverður og skemmtilegur. Nemendur og starfsmenn Dalvíkurskóla vilja færa öllum þeim aðilum sem skipulögðu daginn bestu þakkir fyrir frábærar móttökur og flott framtak. Hér má sjá myndir.
Leiklist hjá unglingum (12.feb.2009)
Dalvíkurskóli og Leikfélag Dalvíkur eru nú enn og aftur í samstarfi varðandi uppsetningu á leikverki fyrir unglinga. Er þetta í fjórða sinn sem samstarf af þessu tagi er tekið upp.
Í skólanum er leiklist kennd sem valgrein í 9. og 10. bekk og 16 nemendur sækja þessa faggrein í vetur. Leiklistarhópurinn æfir nú frumsamið leikverk í Ungó er nefnist "Fólk á förnum vegi..."
Leiðbeinandi leikhópsins og leikstjóri uppfærslunnar er Arnar Símonarson. Stjórn LD mun sérstaklega koma að skipulagningu og aðstoða við uppsetningu með ýmsum hætti. Sjá nánar hér
Bekkjarskemmtun hjá 2.EÞ (6.feb. 2009)
Í vikunni hélt foreldrahópur vetrarannar fjöruga bekkjarskemmtun fyrir okkur í 2.EÞ. Við krakkarnir fjölmenntum í íþróttahúsið ásamt foreldrum okkar þar sem við spreyttum okkur á alls kyns þrautastöðvum, kepptum í boðhlaupi og hnykkluðum vöðvana í reipitogi. Eftir öll hlaupin og sprellið var haldið út í frostið og arkað í Olís til að kæla okkur aðeins niður með ljúffengum ís. Þetta var mjög skemmtileg stund og við þökkum foreldrunum sem skipulögðu hana kærlega fyrir. Sjá myndir.
Spiladagur í 6.bekk (4.feb.2009)
Fyrir stuttu var spiladagur hjá okkur í 6. bekk og fengu nemendur að koma með spil að heiman fyrir þennan dag. Allir skemmtu sér mjög vel. Smellið hér til að sjá myndir.
Mímisbrunnur (30.jan.2009)
Í vikunni fórum við í 2.EÞ að spila við nokkra hressa og skemmtilega eldri borgara í Mímisbrunni. Við spiluðum alls kyns spil og sum okkar lærðu meira að segja að spila vist, Manna og tveggja manna borðvist. Áður en við héldum aftur í skólann var okkur boðið upp á heitt kakó og nýbakaðar og ljúffengar lummur með sultu. Nammi namm : Við skemmtum okkur mjög vel ásamt eldri vinum okkar í Mímisbrunni og þökkum þeim kærlega fyrir alla þeirra vinsemd og höfðinglegar móttökur. Sjá myndir
Sólin heiðruð (28.jan.2009)
Nemendur í 7. bekk hættu snemma í gær í námsbókunum. Vildu heiðra sólina fyrst hún ákvað að kíkja við. Þau fóru í göngutúr niður að höfn og síðan héldu menn heim á leið. Hér eru nokkrar myndir.
Heimsókn í Mímisbrunn (27.maí 2009)
Sú skemmtilega hefð hefur skapast í Dalvíkurskóla að eldri borgarar bjóða nemendum í spilastund
Í Mimisbrunn. Í lok stundarinnar er boðið upp á hressingu sem nemendur kunna vel að njóta.
Samskipti barna við fullorðna eru mikilvæg og geta stuðlað að betri
félagslegri færni. Þetta framtak er hluti af lífsleiknistefnu skólans.
Spilastundirnar eru nemendum ómetanlegar og erum við afar þakklát eldri borgurum.
Nemendur hafa einnig boðið eldri borgurum í heimsókn í skólann. Sjá myndir
Dótadagur 1.bekk (19. jan.2009)
Síðastliðinn föstudag var dótadagur í 1.-4. bekk.
Nemendur í 1.bekk mættu með myndarlegt safn að leikföngum og var mikil leikgleði í valtímanum þegar allir fengu að leika sér með dótið. Sjá myndir
Dótadagur hjá 2.EÞ (19. jan. 2009)
Síðastliðinn föstudag var dótadagur hjá okkur í 2.EÞ. Við mættum meðal annars með dúkkur, Pet Shop dýr, Bratz dúkkur, legó, bíla, spil, kastala og risaeðlur í skólann og fengum að leika okkur saman með dótið hluta úr degi. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum skemmtum við okkur öll afskaplega vel og vorum í sólskinsskapi. Sjá myndir
Stöðvavinna í 1. og 2. bekk (13.jan. 2009)
Í dag hittust nemendur 1. og 2. bekkjar og spiluðu saman stærðfræðispil í sjö litlum hópum. Ætlunin er að hittast hér eftir einu sinni í viku og vinna saman á nokkrum stöðvum að alls kyns verkefnum tengdum íslensku og stærðfræði. Óhætt er að segja að þessi samvinna hafi farið vel af stað því allir skemmtu sér vel og unnu vel saman. Hér eru myndir.
Skemmtileg heimsókn á Dalbæ (9.jan.2009)
Rétt fyrir jól fórum við upp á Dalbæ til þess að gleðja fólkið sem býr þar. Við lásum upp jólasveinavísurnar og sungum nokkur jólalög. Þetta var mjög gaman og allir stóðu sig með prýði. Bjarnveig hjúkrunarforstjóri Dalbæjar bauð svo upp piparkökur og djús á eftir. Við viljum þakka kærlega fyrir okkur og við munum örugglega koma aftur áður en skóla lýkur í vor.
Eftir þessa heimsókn kom upp sú hugmynd að fara í heimsókn til bæjarbúa Dalvíkurbyggðar og gerast svokallaðir heimsóknarvinir. Við gætum t.d. hjálpað til við að moka stéttina, farið í búðina eða bara til þess að spjalla eða spila. Sjá myndir.
Þrettándagleði hjá 2.EÞ (7. jan.2008)
Fyrsta skóladag eftir jólafrí héldum við í 2.EÞ þrettándagleði heima hjá umsjónarkennaranum okkar. Eftir að hafa arkað alla leið út í Lokastíg spiluðum við nokkrar umferðir af bingó og voru vinningshafararnir meira að segja svo heppnir að fá smávegis verðlaun : Við horfðum síðan á hina bráðskemmtilegu og fyndnu óvini Tomma og Jenna á vídjó og sumir hreinlega veltust um af hlátri vegna kjánalátanna á skjánum! Við gæddum okkur einnig á saltstöngum, poppi, muffins og djús og vorum því með næga orku þegar við héldum aftur af stað í skólann. Þetta var ljómandi skemmtileg þrettándagleði, góður endir á jólunum og góð byrjun á skólastarfinu eftir frí. Sjá myndir.
2.EÞ á litlu jólunum (5.jan. 2009)
Litlu jólin voru haldin hátíðleg í dag og mættu börnin í 2.EÞ í sínu fínasta pússi og jólaskapi í skólann. Á meðan kennari las jólasögu gæddu allir sér á smákökum og jóladrykk og svo kíktu fjórir kátir jólasveinar í heimsókn. Þeir komu færandi hendi og dreifðu litlum jólagjöfum til barnanna. Að lokum var svo farið á sal skólans, fylgst með skemmtiatriðum og dansað í kringum jólatré. Hér eru myndir.
Comenius (18.des.2008)
Yngri deild Dalvíkurskóla er þátttakandi í tveggja ára Comeniusarverkefni sem hófst í haust. Verkefnið kallast "Celebrations of the Nations" og fjallar um hátíðis- og tyllidaga hjá þeim þjóðum sem taka þátt í verkefninu. Þátttakendur auk Dalvíkurskóla eru skólar í Róm á Ítalíu, Glasgow í Skotlandi og Hambleton á Englandi. Guðný S. Ólafsdóttir er verkefnisstjóri í Dalvíkurskóla og á dögunum fór hún ásamt Ernu Þóreyju Björnsdóttur til Rómar til að hitta þar kennara frá hinum skólunum, skoða skóla í Róm og funda um næstu skrefin í verkefninu. Í farteskinu höfðu þær kynningu á Dalvíkurskóla sem nemendur í 3. og 4. bekk unnu, ásamt verkefni um jólin á Íslandi sem nemendur í 2. og 5. bekk unnu að. Þær komu heim með samskonar verkefni frá hinum skólunum á Ítalíu, Englandi og Skotlandi.
Þrátt fyrir mikla rigningu í Róm, þrumuveður og umferðartafir vegna flóða tókst ferðin í alla staði mjög vel. Mjög fróðlegt var að skoða skólana og hitta aðra kennara, auk þess sem þær stöllur höfðu m.a. tækifæri til að fara í Vatíkanið og skoða Sistínsku kapelluna.
Næstu skref í verkefninu er að útbúa vefsíðu þar sem hægt verður að fylgjast með verkefninu, útbúa orðabók sem fer líka á netið og inniheldur ýmis orð og frasa sem tilheyra hátíðis- og tyllidögum og munu nemendur 6. bekkjar m.a. vinna að orðabókinni. Síðan vinnum við kynningu á páskum á Íslandi o.fl. Verkefnin verða síðan send á milli skóla, við fáum senda pakka frá hinum skólunum. Þessum kynningum verður komið fyrir jafnharðan á ganginum hjá yngri deildinni.
Svona Comeniusarverkefni eru afar fróðleg fyrir nemendur jafnt sem starfsfólk, eykur víðsýni og skilning á aðstæðum sem aðrar þjóðir búa við. Hér eru nokkrar myndir.
Góðverk fyrir jólin (16.des. 2008)
Í dag fóru Hallgrímur, Pétur Geir og Haraldur heim til Herborgar ritara og hjálpuðu henni fyrir jólin. Þeir settu upp jólaseríu í fallega jólatréið hennar úti ásamt því að hjálpa henni að halda á stórum kassa með jólatré sem hún setur alltaf upp í stofunni. Hún bauð svo upp á kakó og smákökur á eftir. Þetta var alveg yndisleg stund og gaman að geta hjálpað til fyrir jólin. Sjá myndir..
Ekkert fikt (16.des. 2008)
Á dögunum fengum við góða heimsókn. Þá kom Felix lögregluvarðstjóri ásamt tveimur slökkviliðsmönnum, þeim Mörthu og Magnúsi og fræddu eldra stigið um hætturnar sem fylgja skoteldum. Felix gerði grein fyrir þeim reglum sem eru á sölu og notkun flugelda og þau Magnús og Martha sýndu fræðslumyndina "Ekkert fikt". Hér eru myndir.
Kærleikurinn (11.des. 2008)
Desemberþemað í Dalvíkurskóla er kærleikurinn. Nemendur í sælkeravali fóru um bæinn í vikunni ásamt kennurum sínum og hreinsuðu frá útidyrum og gangstéttum eldri íbúa bæjarins. Þetta var frábært framtak og krökkunum var alstaðar vel tekið. Sjá myndir.
Risaeðluverkefni í 2.EÞ (8.des.2008)
Síðastliðinn mánuð höfum við í 2.EÞ unnið að stóru söguaðferðarverkefni um risaeðlur. Við höfum meðal annars lært um hinar og þessar risaeðlutegundir, unnið með lengd risaeðla, útbúið stóra klippimynd með umhverfi risaeðlanna, leyst risaeðluþrautir, fræðst um hvernig risaeðluungar komu í heiminn, skrifað risaeðlusögur, gert myndasögu um endalok risaeðlanna og búið til risaeðlusteingervinga úr leir. Verkefninu lauk svo með glæsilegri kynningu fyrir foreldra, systkini, ömmur og afa. Þetta var ótrúlega skemmtilegt verkefni, núna erum við orðin afskaplega fróð um risaeðlur og kennarinn okkar er viss um að við séum áhugasömustu nemendur í öllum heiminum! Hér eru myndir.
Reykjaferð (8.des.2008)
Vikuna 24.-28. nóv s.l. fór 7.bekkur ásamt kennurum í skólabúðir að Reykjum í Hrútafirði. Dvölin þar gekk mjög vel og eiga nemendur hrós skilið að mati kennara. Hér má sjá myndir sem teknar voru í skólabúðunum.
Hundur í óskilum (3.des. 2008)
Við fengum góða gesti í morgun. Þá mættu þeir félagar Eiríkur og Hjörleifur í Hundi í óskilum á svæðið og skemmtu okkur á þann hátt sem þeim einum er lagið. Mikil ánægja var hjá nemendum með tónleikana og var þeim félögum afar vel fagnað. Hér má sjá nokkar myndir frá heimsókninni.
Söguaðferðin (24. nóv. 2008)
Í dag mánudag hófst söguaðferðaverkefni á eldra stiginu. Nemendum var skipt í hópa sem vinna saman tvo tíma á dag þessa vikuna. Hér eru nokkrar myndir frá hópavinnu.
Opið hús (21.nóv. 2008)
Í gær var opið hús í Dalvíkurskóla. Foreldrar mættu með börnum sínum, skoðuðu skólann, fengu kaffisopa og tóku í spil. Ágætis mæting var og lukkaðist þetta með ágætum. Sjá myndir.
Samvera á sal (17.nóv.2008)
Síðastliðinn þriðjudag, 11. nóvember bauð 5. bekkur hinum bekkjunum í yngri deild skólans á sal.
Þau lásu fyrir okkur setningar um vellíðan - hvenær líður okkur vel andlega, líkamlega og félagslega.
Mörg gullkorn heyrðust þarna, t.d.
Mér líður vel andlega þegar ég stunda íþróttir, t.d. sund
Mér líður vel andlega þegar ég fer með bænirnar mínar
Mér líður vel líkamlega ef ég hugsa um hreinlæti, t.d. að tannbursta mig og fara í sturtu
Mér líður vel félagslega þegar leik við vini mína
Mér líður vel líkamlega þegar ég borða hollan mat
Mér líður vel andlega þegar ég kem fram við aðra eins og ég vil að þeir komi fram við mig.
Sumir nemendur fluttu frumsamin ljóð um vellíðan, t.d. Hera Margrét:
Umhyggja og vinir,
kærleikur og virðing.
Góðir vinir mínir
um vináttuna er girðing.
Einelti og sorg
viljum við ekki
í svona stórri borg
og ekki neina hrekki.
Ekkert hatur viljum við
og fullt af vinum eiga.
Vonandi eigið þið
falleg orð að segja.
Við þökkum nemendum 5. bekkjar kærlega fyrir flutninginn, þau stóðu sig með mikilli prýði.
Samverustundinni lauk síðan með því að allir sungu saman eineltislagið og lagið um vináttuna.
Sjá myndir hér.
Bekkjarskemmtun hjá 2.EÞ (17.nóv. 2008)
Á fimmtudaginn hittumst við í 2.EÞ ásamt foreldrum okkar og kennara í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju og áttum skemmtilega samverustund saman, sem hausthópur foreldra sá um að skipuleggja. Við mættum öll með uppáhalds spilin okkar með okkur og byrjuðum á að spila í góða stund. Því næst sungum við nokkur lög saman og fórum í fjöruga og spennandi leiki. Að síðustu fengu allir gómsætar pylsur í brauði og héldu svo heim í háttinn. Við skemmtum okkur öll mjög vel á bekkjarskemmtuninni og þökkum foreldrunum sem sáu um hana kærlega fyrir okkur. Hér eru myndir.
Við höfnina (14.nóv.2008)
Nemendur í heimilisfræði val hópum og sælkeravali hafa að undanförnu fengið að vinna nýta sér aðstöðu í eldhúsi veitingastaðarins,,Við höfnina". Þar hefur verið bakað og eldað undir stjórn Gústa kokks og kennara og ekki annað að heyra og sjá en að nemendum hafi líkað þessi tilbreyting.
Á síðasta fimmtudag var örlítil jólastemning, laufabrauðsgerð með öllu tilheyrandi. Nemendur stóðu sig mjög vel og ekki annað að sjá en allir hafi haft gaman.
Dótadagur hjá 2.EÞ (13.nóv.2008)
Á miðvikudaginn fengum við í 2.EÞ óskastund því við höfðum náð að fylla krukku Óskars óskaengils af óskasteinum með því að haga okkur vel og vera vinnusöm í kennslustundum. Við óskuðum eftir því að fá dótadag að launum og máttum því koma með dót í skólann. Við komum með alls kyns sniðugt og skemmtilegt dót og nutum þess út í ystu æsar að leika okkur saman. Hér eru myndir.
Góð heimsókn (9.nóv.2008)
Í vikunni fengu allir bekkir Grunnskóla Dalvíkurbyggðar heimsókn frá lögreglunni og Slysavarnadeild kvenna á Dalvík. Aðalerindi þeirrar heimsóknar var að minna börn og unglinga á að nota endurskinsmerki í myrkrinu sem nú er á morgnana þegar þau fara í skólann. Felix Jósafatsson lögregluvarðstjóri minnti börnin líka á útivistartíma og spjallaði um samskipti almennt. Felix minnti börnin einnig á að nú væri tími til kominn að stinga hjólunum í geymslu fram á vorið, enda allra veðra von á þessum árstíma.
Margrét Lára Jóhannsdóttir varaformaður Slysavarnadeildarinnar á Dalvík gaf síðan öllum nemendum Grunnskóla Dalvíkurbyggðar ný og flott endurskinsmerki sem Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur látið útbúa. Það er ánægjulegt þegar svona aðilar taka höndum saman og stuðla að velferð barnanna og unglinganna okkar, nú er að fylgja þessu eftir og sjá til þess að þessi fínu endurskinsmerki verði notuð rétt!
Frá starfsfólki Grunnskólans
Í þeim erfiðleikum sem þjóðin hefur gengið í gegnum undanfarnar vikur, langar okkur til þess að leggja áherslu á mikilvægi þess að standa saman og sýna hvert öðru umhyggju og traust. Það er ótal margt að gleðjast yfir og þakka í okkar góða samfélagi.
Margt getur farið í gegnum huga barnanna í öllu þessu umtali og fréttaflutningi og því nauðsynlegt að hlúa vel að börnunum, forðast að valda þeim áhyggjum og óöryggi
Starfsfólk í Grunnskóla Dalvíkurbyggðar leggur áherslu á að huga vel hvert að öðru með jákvæðu hugarfari og góðum stundum í skólanum. Við viljum einnig benda á að hika ekki við að hafa samband við okkur ef eitthvað er, eða bara til að ræða málin saman. Samvinna okkar allra er mjög mikilvæg nú sem endranær.
Horfum fram á veginn og munum að það sem við eigum í hjarta okkar er það allra mikilvægasta.
Óskum þess að nemendur og fjölskyldur þeirra eigi góðar og friðsælar samverustundir.
Kveðja frá starfsfólki Grunnskóla Dalvíkurbyggðar.
Foreldrar athugið!! (17.okt.2008)
Nú er að koma sá árstími að varasamt er fyrir nemendur að koma hjólandi í skólann vegna myrkurs og hálkubletta. Oft er mikil ísing þrátt fyrir að veður sé gott.
Skólastjórnendur
Skólaskoðun í Dalvíkurskóla
Upplýsingar frá skólahjúkrunarfræðingi
Þema októbermánaðar (2. okt. 2008)
Dalvíkurskóli vinnur með með eitt lífsleikniþema í hverjum mánuði. Í september var unnið með virðingu en núna í október ætlum við að vinna með vellíðan.
Með því að kenna börnum dyggðir er þeim innrætt virðing, góðvild og ábyrgð
gagnvart sjálfum sér og öðrum. Sjá nánar hér
Haustfundir í 1. - 6. bekk
Haustfundir í 7. - 10. bekk
Göngum í skólann
Dalvíkurskóli er þátttakandi í verkefninu "Göngum í skólann". Þetta er alþjóðlegt verkefni sem á að hvetja til aukinnar hreyfingar og draga úr umferð við skóla. Nánari upplýsingar fást með því að smella á fyrirsögnina.
Teiknisamkeppni (9.nóv. 2008)
Nemendur í 1.-4. bekk tóku þátt í teiknisamkeppni Leikfélags Húsavíkur vegna
uppsetningar á Emil í Kattholti. Nokkrir skólar tóku þátt í keppninni og margir nemendur úr Dalvíkurskóla sendu mjög fallegar myndir í keppnina. Ásrún Jana Ásgeirsdóttir í 3. bekk hlaut þriðju verðlaun fyrir myndina sína. Hún fékk viðurkenningaspjald og 4 miða á leikritið. Við óskum henni til hamingju og öllum börnunum sem áttu mynd í keppninni. Myndirnar munu prýða veggi leikhússins.
Hrekkjavaka (3.nóv.2008)
Síðastliðin föstudag heldu 5. og 6. bekkingar upp á hrekkjavöku voru búnir að skreyta stofurnar sínar og gert var draugahús í einni stofu. Mættu nemendur í búningum í skólann og gerðu sér glaðan dag. Eftir að hafa farið í gegnum draugahúsið var horft á myndina A Series Of Unfortunate Events með Jim Carrey í aðalhlutverki. Í lok dags voru svo tekin fram ýmis spil og spilað. Sjá myndir.
Lengdarmælingar í 2.EÞ (31.okt.2008)
Í vikunni unnum við að mjög skemmtilegum mælingarverkefnum í stærðfræði. Við unnum tvö og tvö saman að tvenns konar verkefnum. Annars vegar létum við leikfangabíla renna niður brekku og mældum hversu langa vegalengd þeir runnu áður en þeir stoppuðu og hins vegar mældum við lengd ýmissa líkamshluta og hvað við gætum teygt okkur hátt og tekið stór risaskref. Þessi vinna gekk afar vel og við fengum mikið hrós fyrir samvinnuna : Hér eru myndir.
Framhaldsskólaferð 10. SK (29.okt.2008)
Síðastliðin þrijðudag eða þann 28. október fór 10.SK í framhaldsskóla heimsóknir. Við byrjuðum á því að fara í MA, vorum mætt þar um kl. 10:00. Þar var fyrirlestur um félagslíf og skipulag skólans. Að því loknu var okkur sýndur skólinn. Þegar við vorum búin í MA, var ferðinni heitið á Greifann í dýrindis pizzuhlaðborð, allir orðnir svangir og spenntir í pizzur! :
Við áttum síðan að vera mætt í VMA ekki seinna en 13:15. Þar tók við svipað fyrirkomulag. Félaglífið kynnt, skólinn skoðaður og skipulag skólans kynnt.
Þetta heppnaðist allt saman rosalega vel og var ekki hægt að sjá annað en að 10.bekkingarnir okkar væru mjög svo ánægð með þessa ferð, en við vorum að koma heim á milli 15:30 og 16:00.
Með í þessari ferð voru Brynja námsráðgjafi, Friðrik deildarstjóri og Sissa umsjónarkennari.
Hér eru myndir.
Bangsadagur (29.okt. 2008)
Við í 2.EÞ héldum upp á alþjóðlega bangsadaginn síðastliðinn föstudag. Við mættum öll með bangsa í skólann, kynntum þá og skrifuðum um þá sögur. Við sungum svo ýmis bangsalög með öðrum krökkum á yngsta stigi við undirleik Guðnýjar kennara og lékum okkur með bangsana. Við bjuggum til renninga með gullkornum og myndum af böngsum og leystum stærðfræðiþrautir um bangsa. Við enduðum svo daginn á því að horfa á Bangsimonmynd í vidjó. Þetta var huggulegur og skemmtilegur dagur. Sjá myndir.
Fjör í fjórða bekk (29.okt. 2008)
Undanfarnar vikur höfum við í fjórða bekk verið að vinna verkefni um flokkun og endurvinnslu. Við fengum m.a. heimsókn frá Helgu Írisi hjá umhverfisdeild Dalvíkurbyggðar og hjálpaði hún okkur af stað í flokkun. Nú höfum við flokkað allt rusl sem til fellur í stofunni okkar í rúma viku og ætlum með það í gámana. Pappírinn endurunnum við sjálf með aðstoð Skafta í myndmenntastofunni.
Við unnum okkur inn óskastund með góðri hegðun, við höfum verið að safna okkur óskasteinum í krukku frá því í haust. Í síðustu viku fylltist krukkan og fórum við því fram í Sundskála á þriðjudagsmorgun og lékum okkur þar fram að hádegi. Það var rosalega gaman í Sundskálanum eins og þið sjáið á meðfylgjandi myndum. (væntanlegar)
Nú er að byrja aftur að safna í krukkuna og sjá hvað gerist næst!
Ferð í Sæplast (21.okt. 2008)
Síðasta föstudag fór allur 1. bekkur í Grunnskóla Dalvíkurbyggðar í heimsókn í Sæplast (Promens).
Þar fengu börnin afhent endurskinsvesti. Felix lögga fylgdi okkur þangað og fór yfir umferðarreglurnar á leiðinni úteftir. Þetta var frábær ferð. Börnin fengu að leika sér í plaströrum, skríða ofaní kassa og svo skoðuðum við m.a. stóra pizzuofninn sem notaður var á Fiskidaginn. Að lokum fengu allir svala og prinspóló. Við þökkum Sæplastfólki kærlega fyrir höfðinglegar móttökur og góðar gjafir.
Við vonum að börnin verði dugleg að nota vestin í skammdeginu. Sjá myndir
2. Eþ og ruslaspýturnar ( 20.okt.2008)
í útikennslu í síðustu viku unnum við í 2.EÞ að fróðlegu og áhugaverðu rannsóknarverkefni. Við bjuggum til tvær ruslaspýtur með því að negla bananahýði, gúmmí, plast, pappír, tyggjó og fleira rusl fast við spýturnar og grófum þær svo í jörðu. Í vor ætlum við svo að grafa spýturnar aftur upp og skoða hvað af ruslinu hefur rotnað og eyðst og hvaða rusl verður enn til staðar á spýtunum. Sjá myndir.
Heimsókn í lúðueldi (16.okt.2008)
Föstudaginn 26. september fór 10. bekkur í náttúrufræðitíma í vettfangsferð í lúðueldið Fiskey.
Hér er frásögn eins nemanda frá ferðinni og myndir má sjá hér.
Spurningakeppni (14.okt.2008)
Spurningakeppni á eldra stigi var haldin föstudaginn 10. október.
7. bekkur kom mjög á óvart og stóð uppi sem sigurvegari eftir æsispennandi úrslitaviðureign við 8. bekk.
Til hamingju 7. bekkingar. Sjá myndir.
Samverustund á sal (14.okt.2008)
Í dag, þriðjudaginn 14. október bauð 6. bekkur yngri deildinni á sal. Þar sýndu þau okkur leikrit sem snerist um að trúa á sjálfa sig og að vera sjálfum sér samkvæmur. Síðan lásu þau fyrir okkur setningar sem þau sömdu um virðingu. Við þökkum krökkunum í 6. bekk kærlega fyrir þessa skemmtun, þau stóðu sig með mikilli prýði.
Að loknu atriði þeirra stjórnaði Þóra fjöldasöng og kenndi okkur m.a. eftirfarandi ljóð um vináttuna:
Gulli og perlum að safna sér,
Sumir endalaust reyna.
Vita ekki að vináttan er,
Verðmætust eðalsteina.
Gull á ég ekki að gefa þér
Og gimsteina ekki neina.
En viltu muna að vináttan er,
Verðmætust eðalsteina.
Við stefnum að því að hittast í sal einu sinni í mánuði og munu bekkirnir skiptast á að bjóða hinum og sýna þeim eitthvað sem þau hafa æft. Myndir frá samstundinni í morgun eru hér.
Fjöruferð 5.bekkur (10.okt. 2008)
Fimmtudaginn 9. október fórum við í 5. bekk á sandinn með myndavélina og voru nemendur í hópum að skapa listaverk úr efniviðnum sem þau fundu í fjörunni. Þetta er í annað skipti sem við förum á sandinn og hefur gengið alveg frábærlega að fá þau til að vinna saman. Hér sjáið þið afrakstur vinnunnar.
Útikennsla 3.bekkur (8.okt.2008)
Í útikennslunni í síðustu viku var 3. bekkur að rifja upp speglun. Við notuðum sippubönd til að spegla og bílastæðalínur sem speglunarás. Krakkarnir unnu í 5 - 6 manna hópum og skiptust á að búa til munstur og að spegla. Krakkarnir unnu vel og höfðu gaman af. Endilega kíkið á myndirnar sem tala sínu máli.
Menningarferð 10.SK (2.okt. 2008)
Þriðjudaginn 23. september fór 10.SK í menningarferð til Akureyrar.
Við skoðuðum Iðnaðarsafnið, Minjasafnið og fórum síðan sýningarferð um Húsið, svona til að nefna dæmi. Ýmislegt annað var brallað í þessari ferð og skemmtu allir sér konunglega. Þetta var góður samhrisstingur og munum við öll njóta góðs af. Sjá myndir
Námsmappa í 1.-6. bekk (2. okt.2008)
Á undanförnum árum hafa hugmyndir um fjölbreytt námsmat verið að ryðja sér til rúms í grunnskólum landsins. Dalvíkurskóli leggur áherslu á fjölbreytt námsmat og að draga úr hefðbundnum skriflegum prófum og prófadögum. Í 1. -6. bekk fá allir möppu sem við munum kalla ,,Námsmöppu". sjá nánar hér.
Skólapeysur (2.okt.2008)
Nú á dögunum bárust börnunum í 1.bekk góðar gjafir frá Foreldrafélagi Dalvíkurskóla.
Fengu nemendur skólapeysur að gjöf. Við viljum þakka Foreldrafélaginu kærlega fyrir þetta frábæra framtak.
Eins og sjá má á myndunum taka börnin sig vel út í peysunum og við vonum að þau verði dugleg að nota þær í vetur.
Útivistardagur
Á morgun, þriðjudaginn 9.september verður útivistardagur í Dalvíkurskóla.
Smellið hér til að fá nánari upplýsingar um daginn.
Auglýsing um skólabyrjun
Nýtt skólaár hafið!!
Mánudaginn 18. ágúst mæta kennarar til starfa í Grunnskóla Dalvíkurbyggðar. Fyrstu vikuna verðum við á námskeiðum og undirbúum komu nemenda í skólann.
Eitt af námskeiðunum fjallar um kennsluaðferðina Stig af stigi til að kenna félagslega færni. Námskeiðið er fyrir kennara í 1.-5. bekk.
Kennarar í 7.-10. bekk verða á námskeiði um jákvæð samskipti og samskipti í skólastofunni. Einnig verða allir kennarar á námskeiði um skráningakerfið Mentor og fyrirlestri hjá Þóru Rósu, kennsluráðgjafa, um foreldrasamstarf.
Fyrstu kennsludagarnir
Í fyrstu viku munum við leggja áherslu á útikennslu og lífsleikni. Við munum reyna að vera eins mikið úti og við getum og vinna margvísleg verkefni í flestum námsgreinum í tengslum við þetta þema.
Innkaupalistar vegna næsta skólaárs
eru komnir inn á vefinn
Haustfundir (25.sept.2008)
Haustfundir með foreldrum voru haldnir í skólanum í vikunni. Þeir voru mjög vel heppnaðir og erindin sem Gísli flutti um nýju grunnskólalögin, heilsugæslan um hollustu og heilbrigði og lögreglan um skólaheimsóknir voru mjög áhugaverð. Seinni hluti haustfundanna var með umsjónarkennurum í stofum. Þar voru góðar umræður í vinnuhópum um sameiginleg markmið heimilis og skóla og mikilvægi góðs samstarfs á milli þessara aðila. Foreldrar voru sammála um að mikilvægustu þættirnir í skólastarfi eru velferð og vellíðan barnsins og grundvöllur fyrir því að nám eigi sér stað. Á fundinum voru einnig kynntar breytingar á námsmati í skólanum sem ganga út á það að meta vinnu hvers og eins, minnka vægi skriflegra prófa og gera barnið þátttakanda í námsmatinu. Við erum mjög ánægð með fundina og þökkum foreldrum kærlega fyrir komuna. Höldum áfram að gera gott betur í skólanum og verum virk í menntun barnanna.
2.EÞ í sveitaferð ( 22.sept.2008)
Við í 2.EÞ duttum heldur betur í lukkupottinn á mánudagsmorgun! Foreldrar Guðfinnu Eirar, þau Sigurbjörg og Þorleifur, buðu okkur að koma í heimsókn að Hóli og það var svo sannarlega mikið ævintýri. Okkur var smalað upp á grindarvagn og þannig ferðuðumst við að Hóli. Við jörmuðum dálítið á leiðinni og skemmtum okkur vel í öllum veltingnum! Að Hóli byrjuðum við á því að skoða hænu og vikugamla hænuunga, þeir voru algjör krútt. Svo heimsóttum við kýrnar og kálfana í fjósið og sumir prófuðu meira að segja að gefa einum kálfinum mjólk úr pela. Hann var dálítið gráðugur og drakk mjólkina af áfergju! Við gengum síðan áleiðis upp í fjall og litum í kartöflugarðinn. Þar fengum við að kíkja undir kartöflugrösin og tína kartöflur í fötur. Sumar kartöflurnar voru risastórar en aðrar voru pínuponsulitlar. Við vorum meira að segja svo dugleg að taka upp kartöflur að Sigurbjörg gaf öllum sem vildu nokkrar kartöflur í poka. Það verða því nýjar kartöflur á boðstólnum á mörgum heimilum í kvöld. Á leiðinni úr kartöflugarðinum rákumst við á nokkra hesta sem gaman var að klappa. Heimsóknin endaði síðan á því að öllum var boðið í bæinn til að gæða sér á ristuðu brauði, heimabökuðu bakkelsi og mjólk beint af kúnni. Nammi namm! Að lokum fengum við far á grindarvagninum aftur í skólann og þökkuðum fyrir frábæran morgun með því að hrópa ferfalt HÚRRA fyrir heiðurshjónunum á Hóli. Sjá myndir
Busun (16.sept. 2008)
Nemendur 7. og 8. bekkjar voru boðin velkomin á elsta stig í dag. Þetta var allt á ljúfu nótunum og eldri bekkingar buðu uppá kökur eftir smá glens og gaman. Sjá myndir
Skólaskoðun (16.sept. 2008)
Í morgun fór fram skólaskoðun og bólusetning í 9.bekk.
Göngudagur í 5.bekk ( 15.sept.2008)
Við í 5.bekk fórum upp í Melrakkadal á göngudeginum. Melrakkadalur er í Bæjarfjalli ofan Dalvíkur. Þar áttum við góða stund í einstaklega góðu veðri. Við lékum okkur í Tröllakirkju og borðuðum nesti á milli steinanna. Þetta var hin mesta skemmtun. Við vorum með mikla göngugarpa með okkur en það voru Jóhanna, Ester og Gísli ásamt okkur kennurum 5. bekkjar. Nokkuð stór hópur fór einu þrepi hærra í fjallinu eða upp á Kambinn. Við komum svo niður í skóla tímanlega í grillaðar pylsur og svala. Við þökkum göngugörpunum öllum kærlega fyrir ánægjulegan dag. Sjá myndir
Göngudagur í 4.bekk (12.sept.2008)
Göngudagurinn gekk afar vel hjá 4. –GSÓ eins og öðrum bekkjum Dalvíkurskóla. Við gengum upp að kofa á Böggvisstaðadal í fríðu föruneyti. Við vorum rúman einn og hálfan tíma uppeftir og höfðum nægan tíma til að fá okkur nesti, skoða ána, prófa hengirúmið og leika okkur við kofann. Þegar heim var komið beið okkar pylsugrill sunnan við skólann og var það vel þegið. Sjá myndir
Fréttir úr 1.bekk (12.sept. 2008)
Nú eru krakkarnir í 1 bekk búnir að vera í skólanum á aðra viku.Þetta eru frábærir og duglegir krakkar. Þau hafa nú lært ýmsilegt um hvernig er að vera í skóla og að kynnast hvert öðru í gegnum leiki og vinnu bæði inni og úti.
Hin árlegi göngudagur Dalvíkurskóla á þriðjudaginn var alveg hreint frábær. Við fórum upp að Seltóftum og krakkarnir voru alveg sérstaklega dugleg að ganga.
Veðrið lék við okkur og við nutum þess öll að leika okkur í fjallinu og fengum svo grillaðar pylsur þegar við komum niður í skóla.Við fengum með okkur frábært aðstoðafólk , mömmu hans Daníels Mána, skólaliðanna Lilju og Önnu Þóru og Sjöfn í 10. bekk sem var frábært. Myndirnar tala sínu máli.
Göngudagur Reykjaheiði (11.sept. 2008)
Um 50 nemendur í 8.-10. bekk gengu yfir Reykjaheiði í blíðunni í gær. Ekið var í rútu að Reykjum í Ólafsfirði og lagt á heiðina rétt fyrir kl. 9. Nemendur fóru mishratt yfir, á meðan sumir örkuðu af stað og drifu sig upp á háheiðina með viðkomu á Einstakafjalli, fóru aðrir hægar yfir og nutu veðurblíðunnar og berjanna. Fyrstu menn komu í skólann um 12:30 og þeir síðustu rúmum tveimur tímum seinna. Að lokinni göngunni gæddu göngugarparnir sér á grilluðum pylsum. Sjá myndir
Göngudagur hjá 7.bekk (11.sept. 2008)
Á göngudegi fór 7. bekkur til Hríseyjar. Veðrið lék við okkur. Áður en gengin var 5 km merkt leið kíktum við á Hákarlasafnið og nutum þar leiðsagnar Ásgeirs Halldórssonar. Í Hrísey er gnótt berja og gönguleiðirnar vel merktar og göngufærar fólki á öllum aldri. Við getum svo sannarlega mælt með því að fólk taki ferjuna og skoði eyna í góðu veðri. Sjá myndir
Göngudagurinn hjá 2.EÞ (10.sept.2008)
Á göngudaginn gengum við í 2.EÞ upp að girðingu á Böggvisstaðadal í blíðskaparveðri. Ferðin gekk vel og allir komust á leiðarenda þó svo að sumum hafi þótt leiðin heldur löng og brött! Við girðinguna gæddum við okkur á nesti og fengum fjallgöngunammi í eftirrétt. Við vorum einnig dugleg við að leggjast í berjalyngið og háma í okkur berin sem voru allt í kringum okkur...nammi namm. Við lékum okkur svo í þúfunum, klifruðum upp á stóran stein og skoðuðum köngulær áður en við héldum aftur niður fjallið. Í skólanum biðu okkar grillaðar pylsur sem við skoluðum niður með Svala og áður en við fórum heim skemmtum við okkur í fjörugum hlaupaleikjum. Ella mamma Einars Arnar, Dagbjört mamma Steinunnar Birtu og Ella skólaliðinn okkar fóru með okkur í fjallgönguna og það var frábært að hafa þær með. Við þökkum þeim kærlega fyrir samveruna og alla aðstoðina. Sjá myndir
Fjallamælingar í 2.EÞ (10.sept.2008)
Í útikennslu á mánudaginn fórum við í 2.EÞ út á skólalóð og mældum hæð fjalla sem kennarinn okkar var búinn að kríta á skólalóðina. Þetta verkefni tengist septemberþemanu okkar um fjöllin en við höfum meðal annars lært að hæð fjalla er fundin með því að mæla frá sjávaryfirborði og upp á fjallstopp. Við unnum saman í pörum við að mæla krítarfjöllin á skólalóðinni og það gekk rosalega vel. Kennarinn okkar var meira að segja steinhissa á því hvað við vorum afskaplega dugleg og sjálfsbjarga og hrósaði okkur í hástert. Þetta var lærdómsríkt og skemmtilegt verkefni. Sjá myndir
7.bekkur í skólabyrjun (9.sept.2008)
Brimnesá
Gengið var að Brimnesá með málbönd, skriffæri og báta. Tilgangurinn var að mæla rennsli mismunandi báta á mismunandi stöðum í ánni. Síðan voru meðaltöl reiknuð út og fleira stærðfræðitengt. Myndir
Sandurinn
Gengum niður í fjöru í fínu veðri. Tilgangurinn var að búa til leiðarkort frá skólanum að fjörunni og að skrá niður nöfn eldri húsa sem eru á leiðinni. Þegar því var lokið var aðeins sprellað. Myndir
Sitt lítið af hverju í 2.EÞ (7.sept.2008)
Önnur vika skólaársins gekk vel í 2.EÞ og við gerðum margt fróðlegt og skemmtilegt. Við gengum upp á Stórhól og ræddum saman um fjöll í útikennslu. Við unnum alls kyns verkefni í íslensku- og stærðfræðihringekju og í myndmennt límdum við laufblöð á blöð og teiknuðum svo í kringum þau. Þannig breyttust sum laufblöð í fiska, önnur í karla og svo framvegis. Hér eru nokkrar myndir.
Frétt frá 4. GSÓ (4.sept. 2008)
Í 4.-GSÓ höfum við nýtt okkur góða veðrið undanfarið til rannsókna á alls kyns smádýrum. Við fórum út á skólalóðina og veiddum þar m.a. járnsmiði, köngulær, snigla o.fl. sem við skoðuðum síðan í víðsjá og gerðum skýrslu um rannsóknina. Í framhaldinu bjuggum við til smádýragildrur úr kartöflum og komum þeim fyrir uppi í skógarreit. Á morgun, fimmtudag, ætlum við síðan að skoða í gildrurnar og rannsaka það sem í þeim verður. Sjá myndir
Höfði (2. sept.2008)
Fyrsta skóladaginn hélt 7. bekkur upp að Höfða í sól og blíðu. Kíkt var á nánasta umhverfi og verkefni unnið um örnefni sem skífan bendir á. Ekki skemmdi fyrir allar fersku veitingarnar sem lágu í lynginu. Sjá myndir.
Ratleikur (2.sept. 2008)
7. bekkingar fóru í ratleik í síðustu viku. Stöðvarnar voru frá upplýsingaskiltinu og að Shellinu. Þrautirnar tengdust mælingum, staðháttum á Dalvík og ýmsu fleiru. Sérstaklega var gaman að fylgjast með góðri samvinnu nemendanna. Sjá myndir.
Breyttur útivistartími barna (1.sept. 2008)
Í dag tekur gildi breyttur útivistartími barna og unglinga. Nú mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 20 á kvöldin en 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 22. Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár.
Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum og er meðal annars ætlað að tryggja nægan svefn.
Hér er tengill á frétt um umferðaröryggi skólabarna
8. KBG - fyrsta vikan (1. sept. 2008)
Fyrsta vikan hjá 8. KBG hefur verið skemmtileg og fjölbreytt þar sem mikil áhersla hefur verið lögð á útikennslu. Við höfum farið í göngutúra um bæinn,skroppið í fótbolta, spilað víkingaspilið, eða kubb, eins og sumir þekkja það. Þar skráðu liðin niður fjölda kalla sem þau hittu í hverri umferð og munum við nota niðurstöðurnar í stærðfræðikennslu seinna í vetur þegar við skoðum t.d. prósentureikning.
Við höfum einnig unnið með götukort af Dalvík í enskutíma, þar sem horft er til þess, hvað þau myndu sýna ferðamönnum sem ættu leið hér um.
Á fimmtudaginn vorum við síðan fram á Húsabakka þar sem við máluðum stikur og bættum inn á gönguleiðir ásamt því að malarbera göngustíg, allt undir styrkri stjórn Hjörleifs Hjartarsonar. Það er skemmst frá því að segja að allir stóðu sig ljómandi vel og var mikil vinnugleði ríkjandi eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Líf og fjör í 2.EÞ (1.sept. 2008)
Við í 2.EÞ erum mjög glöð yfir því að vera byrjuð aftur í skólanum og fyrsta vikan var svo sannarlega skemmtileg. Við fórum í berjamó og vigtuðum, flokkuðum og töldum berin þegar við komum aftur í skólann. Við leystum stærðfræði- og íslenskuverkefni á skólalóðinni sem fólst meðal annars í því að finna form og samsett orð á leiksvæðinu. Við fórum upp í skógarreit þar sem við rifjuðum upp heiti hinna ýmsu trjáa, fundum sveppi og veltum fyrir okkur hvað við skynjuðum umhverfis okkur með augunum, eyrunum, nefinu og höndunum. Við spjölluðum einnig mikið, hlóum, ærsluðumst og nutum þess að leika okkur öll saman á ný eftir sumarfríið. Við erum öll sammála um að það er gaman að vera komin í 2. bekk. Sjá myndir frá fyrstu vikunni hér.
Velkomin í skólann
skólaárið 2008-2009
Dalvíkurskóli leggur áherslu á öflugt samstarf heimilis og skóla. Forsenda árangursríks skólastarfs er að foreldrar og skólinn séu í góðu samstarfi. Rannsóknir sýna að börnum líður betur og ná betri námsárangri ef gott samstarf og jákvætt viðhorf er á milli foreldra, barna og kennara. Jákvætt viðhorf og umræða foreldra um skólann og starfsemi hans styrkir hann og bætir. Gott samstarf er mikill stuðningur við skólastarfið. Það er ósk okkar og von að samstarfið verði farsælt og við hlökkum til að vinna með ykkur í vetur. VINNUM AÐ ÞVÍ AÐ GERA GÓÐAN SKÓLA BETRI OG SÝNUM HVERT ÖÐRU VIRÐINGU. VERUM STOLT AF SKÓLANUM OKKAR.
Starfsfólk Dalvíkurskóla
26. ágúst 2008
Mötuneyti tekið til starfa.
Í dag var fyrsti dagur Veisluþjónustunnar ehf í mötuneytinu.
Í boði var lasagne sem fékk mjög góðar viðtökur hjá nemendum og starfsfólki. Svo mikil var ánægjan að klappað var fyrir starfsfólki Veisluþjónustunnar.
22. ágúst 2008
Tilkynning frá skólavistun
Skólavistun.
Boðið verður upp á skólavistun fyrir nemendur eftir skóla á daginn.
Á þriðjudögum og fimmtudögum geta nemendur verið til kl. 17:00, en aðra daga til 16:00.
Nemendur fá létta hressingu á vistunartímanum.
Allar nánari upplýsingar gefur
Hafdís í síma: 6611747.
19. ágúst 2008
Tilkynning frá Veisluþjónustunni ehf.
Kæru íbúar Dalvíkurbyggðar.
Veisluþjónustan Hafnarbraut 5 ehf kemur til með að hefja rekstur fyrir grunn og leikskóla Dalvíkurbyggðar Þriðjudaginn 26 ágúst 2008. Hægt verður að panta mat fyrir grunnskólabörn á heimasíðu okkar www.dallas.is frá og með föstudeginum 22 ágúst eða við skólasetninguna á Dalvík og í Árskógi einnig verða eyðublöð hjá riturum skólanna. Minnum á systkina afslátt sem er 20% fyrir annað barn og 30% fyrir þriðja barn. Það verður stefna okkar að flest allur matur verði unnin á staðnum, lagt verður upp með minkandi salt og sykurneyslu ásamt því að við munum baka okkar eigin brauð.
Vonumst við til að eiga gott samstarf við nemendur,foreldra og starfsmenn skólanna.
Sjá nánar